Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Helga Birgisdóttir

Aðalbygging
Hátíðasal
Þriðjudaginn 16. nóvember 2021 fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Helga Birgisdóttir doktorsritgerð sína í íslenskum bókmenntum, Saga Nonna. Ímyndir og aðdráttarafl í Nonnabókum Jóns Sveinssonar. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 14:00. Hægt verður að fylgjast með vörninni í streymi með því að smella hér.
Andmælendur við vörnina verða dr. Sumarliði R. Ísleifsson, lektor í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands og Turið Sigurðardóttir, prófessor emerita í bókmenntum við Fróðskaparsetur Færeyja.
Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Dagnýjar Kristjánsdóttur, prófessors emerita í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í almennri bókmenntafræði, og dr. Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands.
Gauti Kristmannsson, varaforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Í ritgerðinni eru Nonnabækurnar túlkaðir með því að beita aðferðum sjálfsævisagnafræða. Sýnt er fram á hvernig Nonnabækurnar hverfast um þrjú meginsvið, en það eru bernska, þjóðerni og trú. Gerð er grein fyrir lykilhugtökum í barnabókmenntarannsóknum, hugmyndinni um „barnið“ í vestrænu samfélagi ásamt því að gerð er stutt grein fyrir upphafi barnabókaútgáfu. Þessi umfjöllun myndar fræðilegan grundvöll greiningar á Nonnabókunum. Sjálfsmyndasköpun Jóns Sveinssonar og persónusköpun Nonna eru rannsakaðar og athygli beint að þeim þætti sjálfsmyndar er snýr að upprunanum þar sem landið, þjóðin og norðrið eru í brennidepli.
Um doktorsefnið
Helga Birgisdóttir lauk B.A.-próf í íslensku við Háskóla Íslands og M.A.-prófi í íslenskum bókmenntum við sama skóla ásamt því að hafa lokið námi til kennsluréttinda. Hún starfar sem aðjúnkt í kennslu íslensku við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Helga Birgisdóttir.
