Doktorsvörn í Iðnaðarverkfræði - Ingunn Ýr Guðbrandsdóttir

Aðalbygging
Hátíðarsalur
Doktorsefni:
Ingunn Ýr Guðbrandsdóttir
Heiti ritgerðar:
Eigindlegt kvikt kerfislíkan af orsakasamhengi matvælakerfis: Undirstaða upplýstrar stefnumörkunar og sjálfbærniumskipta í laxeldisiðnaðinum
Andmælendur:
Dr. Birgit Kopainsky, forstöðumaður rannsóknarhóps um kvik kerfislíkön og aðstoðarforseti Landafræðideildar í Háskólanum í Bergen Noregi
Dr. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
Leiðbeinendur:
Dr. Guðmundur Valur Oddsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Hlynur Stefánsson, prófessor við Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík
Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Guðrún Ólafsdóttir, vísindamaður, ASCS rannsóknarhópur, Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Sigurður G. Bogason, forstöðumaður, ASCS rannsóknarhópur, Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Doktorsvörn stýrir:
Dr. Rúnar Unnþórsson, prófessor og deildarforseti Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar HÍ
Ágrip:
Matvælakerfi standa frammi fyrir brýnum sjálfbærniáskorunum sem eiga sér djúpar rætur í tækni og aðferðum við frumframleiðslu, vinnslu og dreifingu matvæla, viðskiptasamböndum, stjórnkerfinu, samfélagsgerðinni og menningunni. Lausn þeirra krefst því róttækra kerfisbreytinga sem kallast sjálfbærniumskipti (e. sustainability transitions). Þar sem matvælakerfi einkennast af samþjöppun valds í höndum stórra, hagnaðardrifinna fyrirtækja sem hafa hagsmuni af óbreyttu ástandi krefjast umskipti þeirra skilnings á innri byggingu (e. endogenous structure) þeirra, og drifkröftum breytinga og tregðu innan slíkra kerfa. Í ljósi þess hve brýnt er að auka sjálfbærni matvælakerfa og þeirra tækifæra sem felast í notkun líkana við stefnumótun sjálfbærniumskipta er markmið þessarar rannsóknar að kortleggja innri byggingu norska fiskeldisiðnaðarins til að ákvarða hvort kvikt kerfislíkan (e. system dynamics model) af innri byggingu matvælakerfis geti stutt sjálfbærniumskipti kerfisins. Niðurstöðurnar benda til þess að innri bygging norska laxeldisiðnaðarins hafi áhrif á þróun iðnaðarins og viðbrög við stefnumörkun stjórnvalda og viðhaldi þannig viðnámi gegn sjálfbærniumskiptum iðnaðarins. Þessar niðurstöður fela í sér að stefnumörkun verður mikilvægt tæki til að leiða sjálfbærniumskipti í framtíðinni og að skilningur á innri byggingu matvælakerfa mun vera forsenda slíkrar stefnumörkunar. Þetta undirstrikar mikilvægi kerfissjónarmiða (e. systems perspective) í stefnumótun og sjálfbærniumskiptum.
Um doktorsefnið:
Er með B.A. í fornleifafræði, B.Sc. iðnaðarverkfræði og M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
Doktorsefnið: Ingunn Ýr Guðbrandsdóttir
