Doktorsvörn í hnattrænum fræðum: Fatou N´dure Baboudóttir

Aðalbygging
Hátíðasalur
Doktorsvörn: Fatou N´dure Baboudóttir mun verja doktorsritgerð sína í hnattrænum fræðum við Háskóla Íslands, fimmtudaginn 9. apríl 2026. Athöfnin hefst klukkan 13.00 og fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og er öllum opin.
Heiti ritgerðar: Birtingarmyndir ójafnaðar meðal unglinga í Bissá, Gíneu-Bissá
Andmælendur: Morten Sodemann, prófessor við Háskólann í Suður-Danmörku, og Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Háskóla Íslands.
Leiðbeinandi: Geir Gunnlaugsson, prófessor emerítus við Háskóla Íslands
Doktorsnefnd: Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskólann í Reykjavík, og Margarida Gaspar de Matos, prófessor í hnattrænni heilsu við Kaþólska háskólann í Lissabon.
Doktorsvörn stýrir: Unnur Dís Skaptadóttir, forseti Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar.
Efniságrip:
Doktorsritgerð Fatou N´dure Baboudóttir fjallar um birtingarmyndir ójafnaðar í lífi unglinga í Bissá, höfuðborg Gíneu-Bissá. Rannsóknin beinist að því hvernig félagslegar og efnahagslegar aðstæður móta daglegt líf unglinga, aðgengi þeirra að menntun, stafrænum tækjum og tækifæri til þátttöku í samfélaginu. Sérstök áhersla er lögð á sjónarhorn unglinganna sjálfra og hvernig þeir upplifa ójöfnuð í daglegu lífi og takast á við þær áskoranir sem þeir standa frammi fyrir.
Rannsóknin byggir á fimm birtum vísindagreinum og sameinar bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Niðurstöður sýna meðal annars að verulegur munur er á aðgengi unglinga að menntun og stafrænum miðlum og að félagslegir og efnahagslegir þættir, svo sem fjölskylduaðstæður og tekjur, hafi mikil áhrif á tækifæri þeirra. Jafnframt sýnir rannsóknin að heimsfaraldur COVID-19 varpaði ljósi á djúpan stafrænan og félagslegan ójöfnuð. Þrátt fyrir þessar áskoranir sýna unglingar í rannsókninni mikla seiglu og frumkvæði og leggja sjálfir fram hugmyndir um leiðir til að bæta aðstæður sínar. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að taka sjónarmið og reynslu ungmenna alvarlega við mótun stefnu og aðgerða sem snúa að velferð þeirra.
Fatou N´dure Baboudóttir fæddist 7. september 1987 í Bergen í Noregi. Fatou er með BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í þróunarfræðum frá sömu stofnun.
