Doktorsvörn í fötlunarfræði: Ciara S. Brennan

Aðalbygging
Hátíðasalur
Miðvikudaginn 13. desember 2017, kl. 14.00 ver Ciara S. Brennan doktorsritgerð sína: Sjálfstætt líf og notendastýrð persónuleg aðstoð á Norðurlöndum: Sjónarhorn mannréttinda (The Nordic Experience of Independent Living and Personal Assistance: A Human Rights Approach)
Andmælendur eru dr. Tom Shakespeare, prófessor í fötlunarrannsóknum, Norwich Medical School, University of East Anglia og dr.polit. Karen Christensen, prófessor og deildarforseti, Department of Sociology, University of Bergen.
Leiðbeinandi í doktorsverkefninu er Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræði, Félags- og mannvísindadeild, Háskóla Íslands en doktorsnefnd skipa einnig dr. James G. Rice, lektor í mannfræði við Félags- og mannvísindadeild og dr. Peter Anderberg, dósent við Blekinge Institute of Technology í Svíþjóð.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, deildarforseti Félags- og mann-vísindadeildar Háskóla Íslands stýrir athöfninni.
Athöfnin er öllum opin. Hún fer fram á ensku en verður rittúlkuð á íslensku.
Doktorsritgerðin er gagnrýnin greining á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð á Norðurlöndum og innleiðingu 19. greinar Samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð. Rannsóknargagna var aflað með viðtölum við leiðtoga miðstöðva um sjálfstætt líf, einstaklinga sem leiddu stefnumótun á þessu sviði og starfsfólk ríkis og sveitarfélaga sem vann að innleiðingu stefnunnar í löndunum þremur.
Nánari upplýsingar veita Ciara S. Brennan (csb1@hi.is) og Rannveig Traustadóttir (rannvt@hi.is) (sími 847-0728).
Athöfnin er öllum opin. Hún fer fram á ensku en verður rittúlkuð á íslensku.
Ciara S. Brennan ver doktorsritgerð sína: Sjálfstætt líf og notendastýrð persónuleg aðstoð á Norðurlöndum: Sjónarhorn mannréttinda (The Nordic Experience of Independent Living and Personal Assistance: A Human Rights Approach)
