Doktorsvörn í fornleifafræði: Magdalena Maria E. Schmid
Aðalbygging
Hátíðasalur
Miðvikudaginn 12. desember fer fram doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild. Þá ver Magdalena Maria E. Schmid doktorsritgerð sína í fornleifafræði sem nefnist Archaeological Applications of Radiocarbon Chronologies and Statistical Models: Dating the Viking Age Settlement of Iceland, eða Geislakolstímatal og tölfræðileg líkön í fornleifafræði: Tímasetning landnáms á Íslandi. Andmælendur verða Philippa Ascough og Fiona Petchey.
Doktorsritgerðin er unnin undir leiðsögn Orra Vésteinssonar, prófessors í fornleifafræði við Sagnfræði- og heimspekideild. Aðrir í doktorsnefnd eru Andrew J. Dugmore, prófessor við Háskólann í Edinborg, Anthony Newton, lektor við sama háskóla og Rachel Wood, sérfræðingur við Oxford-háskóla.
Steinunn J Kristjánsdóttir, deildarforseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnar athöfninni sem fram fer í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.
Um doktorsrannsóknina
Markmið ritgerðarinnar er að bæta nákvæmni og áreiðanleika greininga á söfnum geislakolsaldursgreininga til þess að skilja betur fornleifafræðileg og fornvistfræðileg álitamál á borð við fólksflutninga, landnám, gagnkvæm áhrif manns og umhverfis og viðbrögð samfélaga við loftslagsbreytingum. Þetta skiptir miklu máli því geislakolsgreining er ein mikilvægasta aldursgreiningaraðferðin í forsögulegri fornleifafræði og rannnsóknum á kvartertímabilinu.
Magdalena Maria E. Schmid