Doktorsvörn í ferðamálafræði - Gyða Þórhallsdóttir

Askja
Stofa 132
Doktorsefni: Gyða Þórhallsdóttir
Heiti ritgerðar: Ferðamynstur í tíma og rúmi: Skipulag og stefnumótun fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu (Mobility Patterns in Time and Space - Planning and Managing for Sustainable Tourism)
Andmælendur:
Dr. Anna Guðrún Edvardsdóttir, rannsóknastjóri við svið rannsókna, nýsköpunar og kennslu Háskólans á Hólum
Dr. Ulrike Pröbstl-Haider, prófessor við Deild náttúruvísinda- og sjálfbærra auðlinda í BOKU háskóla, Austurríki
Leiðbeinandi: Dr. Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands
Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Ian Jenkins, gestadósent við Líf- og umhverfisvísindadeild
Dr. Rögnvaldur Ólafsson, fyrrv. dósent (lést árið 2024)
Sæmundur Þorsteinsson, lektor við tæknifræðideild Háskólans í Reykjavík
Dr. Þorvarður Árnason, fræðimaður og forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði
Doktorsvörn stýrir: Dr. Anna Dóra Sæþórsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands
Ágrip
Markmið rannsóknarinnar er að prófa og meta nýjar aðferðir til að greina ferðaleiðir ferðamanna á svæðum sem einkennast af sterkum kjarnasvæðum, oft borgum, sem stýra flæðinu út á jaðarsvæðin. Rannsóknarsvæðið er Ísland og vinsælir náttúrstaðir. Gistináttagögn hafa mikið verið notuð til að greina ferðaleiðir. Slík gögn segja einungis hálfa söguna á stöðum eins og Íslandi, þar sem ferðamenn dvelja mikið til í þéttbýli og fara þaðan í dagsferðir á nærliggjandi náttúrustaði. Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsóknarinnar geti aðstoðað stjórnvöld til að ná markmiðum sínum um að skipuleggja og stjórna ferðaþjónustunni á sjálfbæran hátt. Rannsóknin leggur áherslu á að bæta aðferðafræði og nýtingu ólíkra gagnasetta til að fá skýrari mynd af stöðunni. Til að greina ferðaleiðirnar, var að mestu notast við bifreiðateljara á náttúrustöðum. Gögnin voru borin saman við gagnasett um gistinætur og fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll. Í greinum 1 og 2 var nýting bifreiðateljara til að áætla fjölda ferðamanna á náttúrustöðum lýst. Í grein 3 voru gögnin svo notuð til að greina ferðaleiðir um Ísland. Í grein 4 voru tveir Bluetooth skynjarar notaðir til að greina stefnu farartækja. Niðurstöðurnar sýna fram á mikilvægi sjálfvirkra rannsóknaaðferða. Þær eru hagkvæmar í framkvæmd og ekki þarf að treysta á minni þátttakenda um hvert þeir fóru. Aðferðafræðin sem hér er kynnt veitir góð grunngögn um ferðamynstur og leiðir og er mikilvæg viðbót við aðrar aðferðir. Aðferðafræðin er mikilvæg framþróun í rannsóknum á ferðaleiðum á svæðum eins og Íslandi og heimskautasvæðunum, sem einkennast af sterkum kjarna þaðan sem flæðið er út á jaðarsvæðin.
Um doktorsefnið
Gyða lauk BS prófi í ferðamálafræði og BA prófi í ítölsku árið 2007 frá Háskóla Íslands. Árið 2012 útskrifaðist hún með MS próf í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands.
Gyða hefur séð um talningar ferðamanna á áfangastöðum ferðamanna frá árinu 2014, fyrst í samstarfi við leiðbeinanda sinn Rögnvald Ólafsson (lést í mars 2024). Árið 2019 fór ábyrgð talninganna að mestu yfir á Gyðu.
Gyða á tvö börn, tvíbura, fædda í júlí 2018.
Gyða Þórhallsdóttir
