Doktorsvörn: Bryndís Ólafsdóttir

Aðalbygging
Hátíðarsal
Doktorsvörn: Bryndís Ólafsdóttir
6. maí 2026 kl. 13:00-15:00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands
Bryndís Ólafsdóttir ver doktorsritgerð sína í viðskiptafræði við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Positional Leverage in Distant Institutional Environments: Insights from a Multilevel Context (Stöðutengdur aðstöðumunur í stofnanaumhverfi á fjarlægum mörkuðum: Fjölþrepa nálgun).
Andmælendur eru dr. Tatbeeq Raza-Ullah, dósent við Nottingham University í Englandi, og dr. Ulrike Mayrhofer, prófessor við Université Côte d’Azur í Frakklandi.
Leiðbeinandi er dr. Erla Sólveig Kristjánsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, en auk hennar sitja í doktorsnefnd dr. Martin Johanson, dósent við Stockholm University í Svíþjóð, og dr. Susan Freeman, prófessor við Adelaide University í Ástralíu.
Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor og deildarforseti Viðskiptafræðideildar, stýrir athöfninni. Vörnin fer fram á ensku og er öllum opin.
Ágrip:
Markmið doktorsrannsóknarinnar er að greina alþjóðavæðingu og stöðutengdan aðstöðumun í fjarlægu gestgjafalandi sem einkennist af þróuðu stofnanaumhverfi, töluverðu skrifræði og ólíkum menningarlegum aðstæðum. Með fjölþrepa nálgun varpar rannsóknin ljósi á þær áskoranir sem slíkt stofnanaumhverfi skapar fyrir hátæknifyrirtæki sem starfa utan heimalands síns. Hún skoðar jafnframt hvernig bæði fyrirtækin sjálf og stofnanir heimalands sem starfa erlendis takast á við þessar áskoranir. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði og nýtir meðal annars djúpviðtöl í Japan, Danmörku, Íslandi og Svíþjóð, auk annarrar gagnagreiningar. Niðurstöðurnar sýna annars vegar að stofnanastuðningsnet upprunalands geta auðveldað markaðsaðgengi vegna lögmætrar stöðu sinnar og áhrifa innan stigveldis gestgjafalands, sem opnar dyr að aðilum í áhrifastöðum. Jafnframt veitir rannsóknin innsýn í innri virkni slíkra stuðningsneta, sem má best lýsa með nýju hugtaki ritgerðarinnar, yfirþjóðlegri samvinnusamkeppni (e. supranational coopetition). Þetta hugtak vísar til þess hvernig samvinna innan ríkjasamstarfs byggir á sameiginlegum viðhorfum og samkennd, en einkennist um leið af innri spennu og samkeppni á ólíkum þrepum samstarfsins þegar þjóðarhagsmunir stangast á við sameiginlega hagsmuni. Hins vegar sýna niðurstöðurnar hvernig fyrirtæki geta færst frá utanaðkomandi stöðu erlends fyrirtækis til innvígðrar stöðu í stofnanaumhverfinu með markvissri tengslamyndun við innlenda aðila og virkri aðlögunarhæfni. Rannsóknin leggur þannig sitt að mörkum til rannsókna á markaðsaðgengi og víkkar sýn á stofnanaumhverfið í þjóðfélagslegu samhengi með þverfaglegri nálgun sinni. Hún nýtist því bæði stjórnendum fyrirtækja og stofnana við stefnumótun.
Um doktorsefnið:
Bryndís Ólafsdóttir lauk meistaragráðu frá Boston University í alþjóðatengslum og alþjóðasamskiptum árið 2003 og áður grunnnámi frá Háskóla Íslands í ensku með viðskiptafræði sem aukagrein. Samhliða doktorsnáminu hefur hún starfað sem stundakennari við ýmis námskeið í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, einkum í alþjóðaviðskiptum, og sem aðstoðarmaður í rannsóknum. Áður starfaði Bryndís um árabil í hugbúnaðargeiranum sem sölu- og markaðsstjóri og í öðrum stjórnunarstöðum, meðal annars með ábyrgð á uppbyggingu og sölu á erlendum mörkuðum. Doktorsnámið var styrkt af Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Watanabe-styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands til vettvangsrannsóknar í Japan, Norrænu Asíurannsóknarstofnuninni (NIAS), sem og fleiri norrænum sjóðum.
Bryndís Ólafsdóttir ver doktorsritgerð sína í viðskiptafræði við Viðskiptafræðideild HÍ
