Doktorsvörn: Andrea Hjálmsdóttir

Aðalbygging
Hátíðasal
„Hvað kemur ástin þessu við?“
Starfsferlaþróun og samræming fjölskyldu- og atvinnulífs á meðal doktorsmenntaðra
Föstudaginn 22. maí ver Andrea Hjálmsdóttir doktorsritgerð sína „Hvað kemur ástin þessu við?“ Starfsferlaþróun og samræming fjölskyldu- og atvinnulífs á meðal doktorsmenntaðra. Vörnin fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 14:00 og er öllum opin. Andmælendur eru Dr. Kathleen Lynch, prófessor emerita við University College Dublin og Dr. Jerry A. Jacobs, prófessor við University of Pennsylvania.
Heiti ritgerðar: “What’s Love Got to Do with It?” The Role of Gender in Time Used on Care, Love and Work among Doctorate Holders
Andmælendur: Kathleen Lynch prófessor emerita við University College Dublin og Dr. Jerry A. Jacobs, prófessor við University of Pennsylvania.
Leiðbeinandi: Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.
Doktorsnefnd: Helga Kristín Hallgrímsdóttir, prófessor við School of Public Administration, University of Victoria, Kanada og Þorgerður Einarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild, Háskóla Íslands.
Doktorsvörninni stýrir: Þóroddur Bjarnason, varaforseti Félags-, mannfræði- og þjóðfræðideildar.
Efniságrip:
Meginmarkmið doktorsrannsóknarinnar er að öðlast betri skilning á því hvernig tími sem varið er í umhyggju, ástarvinnu og launaða vinnu hefur áhrif á fjölskyldulíf og starfsframa doktorsmenntaðra. Þó fólk með doktorspróf sé aðeins lítill hluti þeirra sem starfa á íslenskum vinnumarkaði er mikilvægt að rannsaka reynslu og upplifun þess, enda menntun kvenna oft nefnd sem ein mikilvægasta forsenda kynjajafnréttis. Rannsóknarniðurstöðurnar fjalla um íslenskan hluta norræna rannsóknarnetverksins NORDICORE. Um er að ræða megindleg gögn frá Hagstofu Íslands og eigindleg viðtalsgögn sem aflað var á Íslandi og á vesturströnd Kanada. Nýnæmi rannsóknarinnar felst meðal annars í samanburði doktorsmenntaðra sem vinna innan og utan háskólasamfélagsins. Með því að styðjast við kenningar um ástarvinnu og umhyggju varpar rannsóknin nýju ljósi á samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs meðal doktorsmenntaðra. Þrátt fyrir stöðu Íslands sem fyrirmyndarlands þegar kemur að kynjajafnrétti varpa niðurstöður rannsóknarinnar ljósi á hefðbundna verkaskiptingu karla og kvenna með doktorspróf. Þetta undirstrikar hvernig hið persónulega er samofið hinu opinbera; orkan og tíminn sem einkum konur verja í að sinna skyldum heimilisins og umhyggju barna sinna bitnar á störfum þeirra á vinnumarkaði en veitir aftur á móti körlum aukið svigrúm til að einbeita sér að starfsframa sínum. Þessari verkaskiptingu er svo viðhaldið í formlegum og óformlegum valdakerfum og stofnunum samfélagsins, sem leiðir af sér mjög kynjaðan veruleika, bæði á heimilum og á vinnustöðum.
Andrea Hjálmsdóttir er fædd á Akranesi 13. júní 1970. Hún lauk sveinsprófi í gullsmíði við Iðnskólann í Reykjavík, BA gráðu í samfélags- og hagþróunarfræði og nútímafræði frá Háskólanum á Akureyri og MA gráðu í félagsfræði frá University of British Columbia, Vancouver, Kanada. Andrea er lektor í félagsfræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Hún er gift Halli Gunnarssyni og eiga þau dæturnar Fönn og Dögun.
