Skip to main content

Að finna sig í stafrænunni

Að finna sig í stafrænunni - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. nóvember 2024 13:00 til 15:00
Hvar 

Edda

Fyrirlestrasal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrsti ársfundur Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista (MSHL) verður haldinn 26. nóvember kl. 13 til 15 í Eddu, húsi íslenskunnar.

Á fundinum verður farið yfir starfsemi MSHL sl. fjögur ár og verkefnin sem miðstöðin hefur staðið fyrir. Í kjölfar ársskýrslunnar verða þrjú erindi um fjölbreyttar hliðar stafrænna hugvísinda og lista. Owen Hindley, stafrænn listamaður, fjallar um skapandi notkun stafrænnar tækni; Freyja Rut Emilsdóttir, sem fer fyrir Sögusetrinu 1238 á Sauðárkróki, segir frá notkun stafrænnar tækni til miðlunar menningararfsins; Emily Lethbridge, rannsóknadósent við Árnastofnun, fer yfir ferðalög sín í stafrænum heimum hugvísinda síðustu 20 ár.

Dagskrá

  • 13.00 til 13.30 
    Ársskýrsla 2020 til 2024: Eiríkur Smári Sigurðarson, stjórnarformaður
  • 13.30 til 14.00
    Digital Creativity: Owen Hindley, Digital Artist
  • 14.00 til 14.30
    Miðlun og hagnýting menningararfsins: Freyja Rut Emilsdóttir, framkvæmdastjóri Sýndarveruleika ehf.
  • 14.30 til 15.00
    Stafræn ferðalög: Áttir og átthagar: Emily Lethbridge, rannsóknardósent, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Fundinum verður streymt á Zoom.

Fyrsti ársfundur Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista (MSHL) verður haldinn 26. nóvember kl. 13 til 15 í Eddu, húsi íslenskunnar.

Að finna sig í stafrænunni