Nærri 30 stjórnendur í norrænum háskólum á námskeiði NUAS í HÍ

Tæplega 30 stjórnendur í norrænum háskólum komu saman í Háskóla Íslands í vor til að taka þátt í stjórnendanámskeiði sem Samtök starfsfólks í stjórnsýslu í norrænum háskólum (Nordic Association of University Administrators - NUAS) standa fyrir reglulega.

Yfirskrift námskeiðsins nú er “Leading Sustainable Change in Nordic University Administration” en það samanstendur af fimm námslotum sem fara fram í öllum norrænu ríkjunum yfir tólf mánaða tímabil. Námskeiðið er aðeins opið stjórnendum með mannaforráð. Markmið þess er í senn að fræða þátttakendur um strauma og stefnur í stjórnun og leiðtogahæfni innan æðri menntastofnana á Norðurlöndum, rýna í helstu áskoranir í norrænu háskólaumhverfi og skapa stjórnendum tækifæri til að efla stjórnunarhæfni sína og kynnast og deila þekkingu með starfssystkinum annars staðar á Norðurlöndum.

Námskeiðið er nú í boði í tíunda sinn og umsjón með því er í höndum mannauðsdeilda innan Norska tónlistarháskólans í Osló, Linköping-háskóla í Svíþjóð, Álaborgarháskóla í Danmörku, Vaasa-háskóla í Finnlandi auk Háskóla Íslands en þessi skólar eru jafnframt vettvangar námslotanna fimm.
Alls taka 29 stjórnendur úr norrænum háskólum þátt í námskeiðinu nú, þar af tveir frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Mikil aðsókn var að námskeiðinu og komust færri að en vildu en í ár var sérstök áhersla á að höfða til nýrra stjórnenda eða þeirra sem eru nýlega komnir til starfa í háskólasamfélaginu.

Stjórnendurnir sóttu fyrstu námslotuna í Álaborg í mars síðastliðnum en önnur lotan fór fram í Háskóla Íslands í maí. Í þeirri lotu var horft til þess hvernig stjórnendur vinna með teymi og virkja þau til góðra starfa. Áhersla var lögð á sálfélagslegt öryggi og hvernig hægt er að tryggja það á sífellt fjölbreytilegri vinnustöðum þar sem tekið er tillit til allra hópa með inngildingu að leiðarljósi. Aðalkennari lotunnar á Íslandi var Kristrún Anna Konráðsdóttir teymis- og leiðtogaþjálfi.
Í framhaldinu fara fram lotur í Vaasa og Linköping í haust og námskeiðinu lýkur í Osló svo í febrúar 2027.
Þátttakendur í námskeiðinu hafa lýst yfir mikilli ánægju með það í námsmati eftir fyrstu tvær loturnar og því hefur yfirstjórn NUAS óskað eftir því við stýrihóp námskeiðsins að hefja sem fyrst undirbúning fyrir næsta námskeið sem áætlað er að hefjist haustið 2027 eða í upphafi árs 2028. Verður það auglýst vel á meðal stjórnenda í stjórnsýslu HÍ þegar að því kemur.
Fleiri myndir Tryggva Más Gunnarssonar frá námskeiðinu má sjá hér að neðan.




