Tuttugu og fimm tóku við Menntaverðlaunum Háskóla Íslands í vor

Tuttugu og fimm nemendur úr jafnmörgum framhaldsskólum úti um allt land tóku við Menntaverðlaunum Háskóla Íslands en þau voru veitt við útskriftir úr skólunum í vor.
Þetta var í níunda sinn sem verðlaunin voru veitt en með þeim vill Háskóli Íslands verðlauna framhaldskólanema sem hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs auk þess að hafa sýnt eftirtektarverða frammistöðu á sviði lista eða íþrótta, átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans eða sýnt þrautseigju við erfiðar aðstæður.
Hver framhaldsskóli gat tilnefnt nemanda til Menntaverðlaunanna og að þessu sinni bárust Háskóla Íslands 25 tilnefningar. Verðlaunin voru gjafabréf í Bóksölu stúdenta að upphæð 20 þúsund krónur, viðurkenningarskjal frá rektor Háskóla Íslands og styrkur sem nemur upphæð skrásetningargjalds fyrsta skólaárið í Háskóla Íslands, kjósi verðlaunahafinn að hefja nám þar.
Handhafar Menntaverðlauna Háskóla Íslands 2026 eru:
- Agnes Nótt Þórðardóttir – Framhaldsskólinn á Laugum
- Alma Dís Kjartansdóttir – Fjölbrautaskóli Snæfellinga
- Áskell Jónsson – Háskólabrú Keilis
- Benedikt Richardsson – Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
- Birgitta Fanney Bjarnadóttir – Fjölbrautaskóli Suðurnesja
- Daði Þór Friðriksson – Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
- Dagný Katla Karlsdóttir – Fjölbrautaskóli Suðurlands
- Davíð Leó Lund – Framhaldsskólinn á Húsavík
- Dýrleif Kristín Flókadóttir – Menntaskólinn við Hamrahlíð
- Elísa Bríet Björnsdóttir – Fjölbrautaskóli Norðurlands vesta
- Elísa Nótt Ingadóttir – Fjölbrautaskóli Vesturlands
- Eron Thor Jónsson – Verzlunarskóli Íslands
- Eva Rut Jóhansdóttir – Menntaskólinn að Laugarvatni
- Eyrún Freyja Andradóttir – Menntaskóli Borgarfjarðar
- Guðbjörg Ósk Halldórsdóttir – Menntaskólinn á Ísafirði
- Hafrún Katla Aradóttir – Verkmenntaskóli Austurlands
- Heiðrún Vala Hilmarsdóttir – Kvennaskólinn í Reykjavík
- Helga Vala Ólafsdóttir – Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
- Hrafnhildur Hallgrímsdóttir – Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
- Inga Fanney Hauksdóttir – Menntaskólinn í Kópavogi
- Ína Berglind Guðmundsdóttir – Menntaskólinn á Egilsstöðum
- Jóakim Uni Arnaldarson – Menntaskólinn í Reykjavík
- Margrét Lilja Skarphéðinsdóttir – Menntaskólinn á Akureyri
- Oliwia Eva Salej – Menntaskólinn við Sund
- Sigrún Ólafsdóttir – Tækniskólinn
