Móttaka nýnema á Félagsvísindasviði 2026

Hvenær
21. ágúst 2026 13:00 til 14:00
Hvar
Háskólabíó - salur 1
Nánar
Aðgangur ókeypis
Viðburðurinn er ætlaður öllum nýnemum í grunnnámi á Félagsvísindasviði. Markmiðið er að taka vel á móti nýnemum, hjálpa þeim að kynnast samnemendum, rata betur um námsumhverfið og fá skýrari mynd af því hvernig háskólanám virkar. Við hvetjum nýnema eindregið til að mæta á móttökuna.
Dagskrá sameiginlegrar móttöku
- Ávarp rektors HÍ
- Kynning á Uglu – innri vef Háskóla Íslands
- Þjónusta Nemendaráðgjafar
- Kynning frá Nemenda- og kennsluþjónustu FVS
- Sviðsforseti Magnús Þór Torfason býður nemendur velkomna
Kynningar eftir námsgreinum
Eftir sameiginlega dagskrá fara nemendur í kynningu hjá sinni fræðigrein:
- Blaðamennska — Oddi, stofa 203
- Félagsfræði — Oddi, stofa 201
- Félagsráðgjöf — Háskólabíó, salur 2
- Hagfræði — Háskólabíó, salur 3
- Lögfræði — Háskólatorg, stofa 102
- Mannfræði — Lögberg, stofa 102
- Stjórnmálafræði — Oddi, stofa 101
- Þjóðfræði — Lögberg, stofa 103–104
- Viðskiptafræði — Háskólabíó, salur 1
Hér slóð á síðu sem inniheldur upplýsingar um allar byggingar á Háskólasvæðinu
Hlökkum til að sjá ykkur.
Móttaka nýnema í grunnnámi á Félagsvísindasviði fer fram föstudaginn 21. ágúst kl.13:00 í stóra salnum í Háskólabíói
