Velkomnir nýnemar haustið 2026 Hér finnurðu svör við mörgum af þeim spurningum sem kunna að vakna þegar þú hefur nám í Háskóla Íslands á Hólum. Ef þú finnur ekki svar við þinni spurningu hvetjum við þig til að hafa samband við þjónustueiningar skólans, til dæmis í gegnum netspjallið hér á síðunni. Samnemendur þínir hjálpa þér líka án efa eftir fremsta megni. Móttaka nýnema haustið 2026 HÍ á Hólum býður alla nýnema í grunnnámi velkomna í nám við skólann, mánudaginn 24. ágúst kl. 9:00 - 22:00 og þriðjudaginn 25. ágúst frá kl. kl. 9:00 - 17:30, eftir það tekur við kvölddagskrá á vegum nemendafélagsins. Allir nýnemar óháð því í hvaða námi þau eru að byrja, mæta á nýnemadagana. Móttakan verður með hefðbundnu sniði og er hluti af því að kynna skipulag skólastarfsins og efla tengsl milli nemenda í upphafi náms við skólann. Markmiðið er að taka vel á móti nýjum nemendum,með því að bjóða upp á fræðslu og kynningu á námi, þjónustu og háskólalífinu á Hólum. Dagskrá nýnemadaga fer fram á Hólum í Hjaltadal. Nýnemadagar eru frábært tækifæri til að kynnast samnemendum, kennurum og starfsfólki áður en kennsla hefst. Með þátttöku í dagskránni fá nýnemar betri innsýn í námið, þjónustu skólans og daglegt líf á Hólum, auk þess að mynda fyrstu tengslin í háskólasamfélaginu. Við hvetjum alla nýnema til að mæta og hefja námið af öryggi og krafti. Þjónustuborð fyrir nýnema verður opið á nýnemadögum frá kl.10-12.30 og 13-14 í aðalbyggingu HÍ á Hólum. HÍ á Hólum er hluti af Háskóla Íslands. Á nýnemasíðu HÍ er hægt að finna svör við mörgum af þeim spurningum sem kunna að vakna þegar þú hefur nám við Háskóla Íslands. Staðbundnar upplýsingar varðandi aðstöðu og stoðþjónustu til nemenda við HÍ á Hólum má finna á heimasíðu HÍ á Hólum og á vefsíðum deilda innan HÍ á Hólum. Ef þú finnur ekki svar við þinni spurningu hvetjum við þig til að hafa samband við þjónustueiningar skólans, t.d. í gegnum netspjallið hér á síðunni. Samnemendur þínir hjálpa þér líka án efa eftir fremsta megni. Endilega fylgstu með Instagram reikningi HÍ á Hólum þar sem kynnt er ýmis þjónusta, stuðningur og félagslíf sem stendur nemendum til boða. Mikilvægar dagsetningar Nýnemadagar verða 24.-25. ágúst 2026 - skyldumæting er þá daga. Fyrstu kennslulotur hefjast miðvikudaginn 26. ágúst 2026. Nám á 2. og 3. ári í hestafræði byrjar samkvæmt stundatöflu sem birtist í Uglu. Húsnæði og aðstaða Aðalbygging á Hólum er opin frá 8-16 alla virka daga. Nemendur komast inn með kóða utan opnunartíma. Bókleg kennsla fer fram í aðalbyggingunni á Hólum og þar eru staðbundnar lotur haldnar. Brúnastaðir er reiðhöll og hesthús staðsett á hesthússvæðinu við Hóla. Þar fer fram verkleg kennsla í hestafræði en jafnframt er á hesthússvæðinu útireiðvöllur, Skólahesthús ásamt reiðhöll sem kölluð er Skólareiðhöllin. Þrándarhöll sem er reiðhöll er jafnframt á hesthússvæðinu. Faxatorg á Sauðárkróki. Gengið er inn um inngang að austan (til móts við Ráðhús Skagafjarðar) og eru skrifstofur á 1. hæð. Skrifstofur starfsfólks á stoðsviði og stjórnenda eru bæði í aðalbyggingu á Hólum í Hjaltadal og á Faxatorgi. Starfsfólk í ferðamálafræði hafa vinnuaðstöðu á Faxatorgi en einnig á Hólum. Bókasafn HÍ á Hólum er á 3. hæð í viðbyggingu aðlbyggingu á Hólum. Sjálfsafgreiðsla er á útlánum. Upplýsingar um bókasafnið veitir kennslustjóri HÍH og starfsfólk þjónustuborðs. Nemendur HÍH hafa sama aðgang að þjónustu Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafni og aðrir nemendur HÍ. Líkamsræktaraðstaða er í aðalbyggingu á Hólum, sem nemendur geta nýtt sér. Sundlaug og heitur pottur er við aðalbyggingu en er ekki opin almenningi. Nemendur geta fengið aðgang í samráði við staðarumsjónarmann HÍH. Mötuneyti er í aðalbyggingu á Hólum þar sem hægt er að fá hádegismat. Sjálfsali er í mötuneytinu. Engin verslun er á Hólum. Öryggismál í HÍH. Nemendur geta haft samband við staðarumsjónarmann ef neyðartilfelli koma upp sem varða húsnæði skólans. Hafa skal samband við Neyðarlínuna 112 vegna veikinda og slysa. Nemendagarðar - Sjá vefsíðu Nemendagarða Húsnæði fyrir nemendur í staðlotum. Flestar staðlotur í ferðamálafræðideild og í fiskeldis- og fiskalíffræðideild fara fram á Hólum í Hjaltadal en eru stundum skipulagðar annarrs staðar á landinu. Þær upplýsingar fá nemendur þegar þeir hefja nám við deildirnar. Nemendum stendur til boða að leiga íbúðir í staðlotum á Hólum af Nemendagörðum. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu Nemendagarða. Aðstaða á Hólum og í Skagafirði Leikskólar - Það er leikskóli á Hólum - Leikskólinn Tröllaborg. Matvöruverslanir eru á Sauðárkróki og á Hofsósi. Sundlaugar eru í Varmahlíð, á Sauðárkróki og í Hofsósi. Við Hóla í Hjaltadal er mikið af reiðvegum og gönguleiðum. Heilsugæsla og sjúkrahús HSN er á Sauðárkróki. Bókasafn er á Sauðárkróki. Upplýsingar um þjónustu Sveitafélagsins Skagafjörður. Strætó nr. 57 fer á milli Reykjavíkur og Akureyrar með viðkomu á Sauðárkróki og í Varmahlíð. Aðrar almenningasamgöngur eru ekki í Skagafirði. Ýmis afþreying í Skagafirði Home of the North Visit Skagafjordur. HÍ á Hólum facebooklinkedintwitter