Skip to main content
15. júní 2026

Kristín Jóhannsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í náms- og starfsráðgjöf

Kristín Jóhannsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn úr náms- og starfsráðgjöf - á vefsíðu Háskóla Íslands

„Það er aldrei of seint að láta drauma rætast.“

Kristín Jóhannsdóttir er 48 ára, fædd og uppalin á Hvolsvelli. Hún er gift Páli Eggertssyni og saman eiga þau þrjú börn á aldrinum 15–20 ára. Hún lauk BS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og síðar búfræðinámi frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Frá árinu 2006 hefur hún starfað sem bóndi í Fljótshlíð.

Áhugamálin eru fjölbreytt: útivist, hreyfing, lestur góðra bóka, eldamennska, menntamál og mannleg samskipti.

Hún valdi nám í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands vegna áhuga á að styðja fólk við að kynnast sjálfu sér betur og finna sína hillu í lífinu.

„Tilhugsunin um að geta aðstoðað aðra við að öðlast betri sjálfsþekkingu heillar mig.“

Það skipti hana einnig miklu máli að geta stundað námið í rauntíma í fjarnámi, þar sem hún býr á landsbyggðinni.

Það sem stóð helst upp úr var hversu skemmtilegt námið var í heild sinni, aðgengi kennaranna og það nýja sjónarhorn sem námið gaf á lífið og mannlega tilveru.

„Það er alveg magnað að öðlast nýtt sjónarhorn á lífið í gegnum menntun.“

Mest krefjandi var að takast á við mikinn lestur og þétt verkefnaskil samhliða vinnu og fjölskyldulífi. Það reyndi á skipulagshæfni og þrautseigju en hún komst í gegnum það með ró og jafnvægi.

„Þetta tókst með því að anda rólega inn og svo aftur út og taka eitt skref í einu.“

Námskeiðin um ráðgjafar- og starfsferilskenningar komu henni sérstaklega skemmtilega á óvart. Besta námsráðið hennar er einfalt: gott skipulag, vinnusemi og að byrja strax vel.

„Það skilar sér að mæta undirbúin í tíma en það má samt ekki gleyma að hafa gaman líka.“

Samhliða náminu hefur Kristín starfað sem kúa- og sauðfjárbóndi ásamt eiginmanni sínum og tengdaforeldrum. Hún segir stuðning fjölskyldunnar hafa skipt miklu máli, sérstaklega þegar námið kallaði á tíma frá bústörfunum.

Eftir útskrift heldur hún áfram að starfa á búinu en vonast til að fá tækifæri í náinni framtíð til að starfa sem náms- og starfsráðgjafi í sinni heimabyggð.

Það sem hún er stoltust af er að hafa látið verða af því að fara aftur í háskólanám eftir rúmlega 20 ára hlé.

„Það var stórt skref og alls konar efasemdir bönkuðu upp á en ákvörðunin reyndist hárrétt.“

Til hamingju Kristín!