Skip to main content
15. júní 2026

Hilda Amoako-Arhin útskrifaðist með ágætiseinkunn í International Business and Project Management

Hilda Amoako-Arhin útskrifaðist með ágætiseinkunn úr International Business and Project Management - á vefsíðu Háskóla Íslands

Hilda Amoako-Arhin útskrifast með ágætiseinkunn úr International Business and Project Management

Hilda Amoako-Arhin, sem er frá Gana, flutti til Íslands til að sækja sér frekara nám og ný tækifæri. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í International Business and Project Management frá Félagsvísindasviði Háskóla Íslands 13. júní.

Hilda er með bakgrunn í hagfræði, bankastarfsemi, fjármálum og reikningshaldi og starfaði um árabil við fyrirtækjabankaþjónustu og lánagreiningu áður en hún flutti til Íslands. Hún valdi námið þar sem það sameinar tvö svið sem skipta miklu máli í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi: alþjóðaviðskipti og verkefnastjórnun.

„Ég vildi dýpka skilning minn á alþjóðlegum viðskiptum og þróa hagnýta færni í verkefnastjórnun sem nýtist meðal annars í lánagreiningu og fjármögnun verkefna,“ segir Hilda.

Það sem stóð helst upp úr í náminu var fjölbreytileikinn í nemendahópnum. Að læra með nemendum frá ólíkum löndum og með ólíkan faglegan bakgrunn gaf henni dýrmæta innsýn í hvernig fyrirtæki starfa þvert á menningarheima. Hún nefnir einnig hópverkefni þar sem nemendur fengu að tengja fræðin við raunveruleg viðfangsefni í viðskiptum.

Hilda segir það hafa verið krefjandi að samræma nám, vinnu og aðlögun að lífi í nýju landi. Skipulag, agi, skýr markmið og stuðningur frá samnemendum, kennurum og fjölskyldu hjálpuðu henni að komast í gegnum það. „Consistency and discipline were key,“ segir hún.

Námið kom henni skemmtilega á óvart fyrir hversu hagnýtt og lifandi það var. Hún segir námskeiðin hafa hvatt til gagnrýninnar hugsunar, samvinnu og lausnamiðaðrar nálgunar sem nýtist beint í atvinnulífinu.

Aðspurð um námsráð til nýnema segir Hilda mikilvægt að byrja snemma, spyrja spurninga, taka virkan þátt í umræðum og bíða ekki með verkefni fram á síðustu stundu. Sjálf lærir hún best með reglulegri yfirferð, raunhæfum markmiðum og því að tengja námsefnið við raunveruleg dæmi.

Eftir útskrift leitar Hilda að tækifærum þar sem hún getur nýtt bakgrunn sinn í reikningshaldi, fjármálum, tölfræði og verkefnastjórnun. Hún hefur einnig hafið meistaranám í hagnýtri tölfræði og heldur áfram að bæta íslenskukunnáttu sína.

Hilda er sérstaklega stolt af því að hafa lokið náminu með framúrskarandi árangri á sama tíma og hún tókst á við margar skyldur og aðlagaðist nýju menningar- og námsumhverfi. Vinir hennar myndu lýsa henni sem „skipuleggjandanum“ í hópnum enda elskar hún töflureikna, litakóðuð dagatöl og verkefnalista.

Utan námsins finnst Hildu gaman að synda, horfa á kvikmyndir og prjóna, sem hún lærði eftir að hún flutti til Íslands. Hún segist líka enn verða jafn spennt þegar norðurljósin birtast.

Til hamingju með glæsilegan árangur, Hilda!