Skip to main content

Doktorsvörn í fötlunarfræði: Eliona Gjecaj

Doktorsvörn í fötlunarfræði: Eliona Gjecaj - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. júní 2026 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Doktorsvörn í fötlunarfræði – Eliona Gjecaj

Eliona Gjecaj ver doktorsritgerð sína í fötlunarfræði við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands. Doktorsvörnin fer fram 19. júní kl. 13:00 í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands.

Ritgerðin ber heitið Disabled Women and Violence: Access to Justice (Fatlaðar konur og ofbeldi: Aðgengi að réttlæti).

Um doktorsritgerðina

Doktorsritgerðin fjallar um aðgengi að réttlæti fyrir fatlaðar konur sem hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi. Rannsóknin fór fram á Íslandi og varpar ljósi á þá margþættu mismunun sem fatlaðar konur verða fyrir, með áherslu á möguleika þeirra til að lifa án ofbeldis og misnotkunar, og rétt þeirra til aðgengis að réttlæti eins og kveðið er á um í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Rannsóknir á þessu sviði eru takmarkaðar og markmið þessarar doktorsrannsóknar er að fylla í eyðurnar með því að auka þekkingu á reynslu bæði fatlaðra kvenna og þeirra aðila sem styðja þær við að greina, tilkynna, rannsaka og kæra ofbeldið. Rannsóknin byggir á 36 ítarlegum viðtölum, greiningu skjala og vettvangsathugunum. Í henni er varpað ljósi á reynslu fatlaðra kvenna af ofbeldi og dregnar fram fjölbreyttar birtingarmyndir þess og flókið eðli. Niðurstöðurnar sýna að fáttítt er að konurnar tilkynni ofbeldið og greinir þær margvíslegu ástæður sem liggja þar að baki, meðal annars hvernig konurnar sjálfar skilja hugtakið réttlæti í samhengi við þær hindranir sem þær mæta. Rannsóknin varpar jafnframt gagnrýnu ljósi á víðtækari álitaefni sem varða aðgengi fatlaðra kvenna að réttarkerfinu. Í ritgerðinni er kallað eftir því að íslensk stjórnvöld grípi til raunhæfra aðgerða til að vernda fatlaðar konur gegn því útbreidda ofbeldi sem þær verða fyrir og uppfylli skyldur sínar um að tryggja viðeigandi og réttláta aðlögun innan íslenska réttarkerfisins.

Andmælendur eru Dr. Theresia Degener, prófessor emerita við Protestant University for Applied Sciences í Þýskalandi, og Dr. Karen Soldatić, prófessor við Toronto Metropolitan University í Kanada.

Aðalleiðbeinandi er Dr. Rannveig Traustadóttir, prófessor emerita við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands.

Doktorsnefnd skipa Dr. Anna Lawson, prófessor við University of Leeds í Bretlandi, Dr. James Gordon Rice, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands, og Helga Baldvins Bjargardóttir, aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Athöfninni stýrir Dr. Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands.

Öll eru velkomin.

Um doktorsefnið
Eliona Gjecaj er með LLM-gráðu í alþjóðlegum samanburðarrétti og stefnumótun á sviði mannréttinda fatlaðs fólks frá University of Galway á Írlandi. Hún er einnig með alþjóðlega BA-gráðu í félagsfræði, stjórnmálafræði og spænsku frá sama háskóla. Frá janúar 2019 til júní 2025 sat hún í fyrstu lögbundnu ráðgjafarnefndinni um málefni fatlaðs fólks á Írlandi, skipuð af Irish Human Rights and Equality Commission. Eliona hefur einnig komið að kennslu á háskólastigi, bæði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri.

Doktorsvörn í fötlunarfræði: Eliona Gjecaj