Doktorsvörn í efnafræði - Ancy Trisha Wilson

Aðalbygging
Hátíðasalur
Doktorsefni:
Ancy Trisha Wilson
Heiti ritgerðar:
Þróun á AsymPol- og bTurea-afleiddum tvínítroxíðum fyrir mögnun á kjarnaskautun í líffræðilegum kerfum
Andmælendur:
Dr. Marius Haugland-Grange, dósent við efnafræðideild UiT Norðurslóðaháskólans í Noregi
Dr. Elvar Örn Viktorsson, lektor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands
Leiðbeinandi:
Dr. Snorri Þór Sigurðsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands
Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson, dósent við Raunvísindadeild Háskóla Íslands
Dr. Pétur Orri Heiðarsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands og dósent við líffræðideild Kaupmannahafnarháskóla í Danmörku
Dr. Óttar Rolfsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands
Doktorsvörn stýrir:
Dr. Haraldur Gunnar Guðmundsson, lektor við Raunvísindadeild HÍ
Ágrip:
Mögnun á kjarnaskautun (e. dynamic nuclear polarization, DNP) fyrir kjarnsegulgreiningu á föstu efni (e. solid state nuclear magnetic resonance, ssNMR) hefur á undanförnum árum þróast í öfluga aðferð til að greina byggingu á flóknum lífsameindum. DNP eykur styrkleika merkja í NMR með því að flytja skautun frá ópöruðum rafeindum yfir á kjarna sameindarinnar sem á að mæla. Sú aukning sem verður á næmni NMR mælinga með notkun DNP gerir kleift að greina lífsameindir við lífeðlisfræðilegan styrk þeirra. Þar sem nítroxíð tvístakeindir hafa reynst afar vel sem skautunarefni við 9,4 T og 14,1 T segulsvið, henta þau vel til rannsókna á á flóknum lífsameindum með DNP-NMR. Hins vegar er víðtæk notkun þeirra takmörkuð, meðal annars vegna flókinna efnasmíða, skorti á sértækni, lélegri vatnsleysni og hraðri afoxun í afoxandi umhverfi. Þessi doktorsritgerð lýsir hönnun nýrra aðferða við efnasmíði á nítroxíð tvístakeindum, til að takast á við þessar takmarkanir. Í fyrsta lagi var röð AsymPol-afleiða smíðaðar sem innhalda m.a. ísóþíósýanat, tetrasín, maleimíð, kólesteról og azíð til sértækar notkunar á fjölbreyttum kerfum, allt frá lífsameindum til fastefna. Þessar afleiður af tvístakeindum gerðu okkur kleyft að nota DNP til þess að auka markvisst NMR merki frá ákveðnum stöðum á sameindinni. Í öðru lagi voru smíðaðar nýjar bTurea-afleiður, bcTCOOK og bcTmol, sem auðvelda efnasmíðar á vatnsleysanlegum og öflugum nítroxíð tvístakeindum. Af þessum afleiðum var bcTCOOK-M2 með bestu heimturnar og sýndi sérstaklega mikla mögnun á kjarnaskautun. Að lokum var þróuð aðferð fyrir efnasmíði á nítroxíð tvístakeindum, sem eru í senn vatnssæknar og afoxunarþolnar (43 og 44), til DNP-mælinga í frumum. Stöðugleiki þeirra reyndist ekki nægur við afoxandi aðstæður til notkunar í frumum.
Um doktorsefnið:
Ancy Trisha Wilson fæddist árið 1996 í Kerala á Indlandi. Hún lauk BA-gráðu í efnafræði frá St. Thomas College í Thrissur á Indlandi og meistaragráðu í efnafræði frá Central University of Tamil Nadu á Indlandi.
Doktorsefnið Ancy Trisha Wilson
