Skip to main content

Doktorsvörn í byggingarverkfræði - Dipendra Gautam

Doktorsvörn í byggingarverkfræði - Dipendra Gautam - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. júní 2026 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Doktorsefni:
Dipendra Gautam

Heiti ritgerðar:
Um jarðskjálftahegðun og tjónnæmi bygginga: Kvik auðkenning, ástandsmat og skemmdalíkön

Andmælendur:
Dr. Carlos Sousa Oliveira, prófessor emeritus við byggingarverkfræðideild, arkitektúr og jarðauðlindir, Instituto Superior Técnico, Háskólanum í Lissabon, Portúgal
Dr. Iunio Iervolino, prófessor við verkfræði- og byggingarlistardeild Federico II Háskólans í Napólí, Ítalíu

Leiðbeinandi:
Dr. Rajesh Rupakhety, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands

Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Bjarni Bessason, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Hugo Rodrigues, dósent við byggingarverkfræðideild háskólans í Aveiro, Portúgal

Doktorsvörn stýrir:
Dr. Hrund Ólöf Andradóttir, prófessor og deildarforseti Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar HÍ 

Ágrip:
Mannvirki verða fyrir ýmsum breytingum á líftíma sínum vegna hrörnunar og ytra álags. Þessar breytingar eru lykilatriði varðandi hönnun og við að meta og spá fyrir um hegðun mannvirkja. Þrír meginþættir í byggingarverkfræði; hönnun, mat á svörun, og styrkingar, hafa mest áhrif varðandi öryggi, notkun og rekstur mannvirkja. Þrátt fyrir að hver þessara þátta hafi verið rannsakaður ítarlega hver fyrir sig hefur samræmd nálgun ekki almennt verið beitt, allt frá eiginleikaeinkennum, yfir í ástandsmat og að lokum yfir í líkindafræðilega framsetningu á svörun. Með það að markmiði að samþætta framsetningu þessara þriggja meginþátta er í þessari rannsókn beitt kerfisauðkenningu til að þróa eiginsveiflutíma-hæðar sambönd. Enn fremur er gert ástandsmat á mannvirkjum: án ytra álags; sem hafa hrörnað; og fengið breytt ástand vegna öfgaálags, framvindu í byggingarfasta, eða verið styrkt eftir tjón. Loks eru þróuð skemmdaföll byggt á raungögnum eftir jarðskjálfta fyrir lágreist járnbent steinsteypt mannvirki. Bæði eru ákvörðuð skemmdaföll fyrir mannvirki sem heild en einnig fyrir einstaka byggingarhluta. Rannsóknin nær til lágreistra mannvirkja úr járnbentri steinsteypu og hlaðinna múrbygginga varðandi kerfisauðkenninguna og við matið á jarðskjálftatjónnæmi. Tilraunaðferðum og gögnum er beitt til að meta aflfræðilega eiginleika mannvirkja og við að meta ástandsbreytingar vegna hrörnunar og ytra öfgaálags. Rauntjónagögn eftir jarðskjálfta og tölfræðileg líkön eru notuð til að ákvarða skemmdaföll sem lýsa líkindum á að yfirstíga tiltekin skemmdastig. Bayesísk nálgun er nýtt við líkangerðina með MCMC-aðferð og Metropolis–Hastings slembiúrtaki til að ákvarða sambönd milli sveiflutíma og hæðar, sem og skemmdaföll. Óvissa í líkanastikum er einnig metin.

Um doktorsefnið:
Dipendra Gautam er fæddur og uppalinn í Nepal. Rannsóknaráhersla hans er á vítt svið byggingar- og vélaverkfræði. Áður en hann kom til Íslands vann hann að fjölmörgum rannsóknum heima fyrir, gaf út tugi rannsóknargreina og ritstýrði tveimur Elsevier-bókum. Hann fjallar um náttúrulegar öfgar í byggingarverkfræði og hefur reynslu af flóðum, vindum og jarðskjálftum. Nýjasta áhersla hans beinist meira að seiglu. Hann stefnir að því að leysa Navier-Stokes tilvistar- og sléttleikavandamálið, eitt af þúsaldarvandamálum, einn daginn. Hann er aðdáandi náttúrunnar, fer í langar ferðir og reikar um án ástæðu. Hann er anímisti að fæðingu og lifir lágmarkslífi. Hann hefur mikinn áhuga á kántrítónlist. Hann elskar stærðfræðigreiningu, jöfnur, eðlisfræði og merki mest. Hann skrifaði hundruð skoðanagreina í nepölskum fréttamiðlum og skrifar stundum skáldskap sem lýsir ríkulegu ímyndunarafli og rómantík.

 

Doktorsefnið Dipendra Gautam

Doktorsvörn í byggingarverkfræði - Dipendra Gautam