Skip to main content

Doktorsvörn í læknavísindum - Oddur Björnsson

Doktorsvörn í læknavísindum - Oddur Björnsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. júní 2026 13:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 5. júní ver Oddur Björnsson doktorsritgerð sína í læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Þvagvegakrabbamein á Íslandi: Faraldsfræði, greining, meðferð og afdrif sjúklinga. Urothelial carcinoma in Iceland: Epidemiology, diagnosis, treatment and patient outcome.

Andmælendur eru dr. Ulla Nordström Joensen, klínískur dósent við Kaupmannahafnarháskóla, og Sigurdís Haraldsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Sigurður Guðjónsson. Auk hans sátu í doktorsnefnd Ásgerður Sverrisdóttir, sérfræðilæknir (látin), Eiríkur Orri Guðmundsson, sérfræðilæknir og Tómas Guðbjartsson, prófessor.

Sædís Sævarsdóttir, prófessor og deildarforseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.

Ágrip

Þvagvegakrabbamein er meðal algengustu krabbameina í heiminum og nýgengi þess er hátt á Norðurlöndum. Þvagblöðrukrabbamein er algengasta birtingarmynd þvagvegakrabbameins en krabbamein í efri þvagvegum er töluvert sjaldgæfara. Markmið þessarar doktorsritgerðar var að lýsa faraldsfræði, meðferð og afdrifum sjúklinga með þvagvegakrabbamein á Íslandi.

Ritgerðin byggir á fjórum ferilrannsóknum. Þrjár þeirra voru þýðisbundnar rannsóknir sem náðu til allra sjúklinga sem greindust með þvagvegakrabbamein á Íslandi á skilgreindum rannsóknartímabilum, en ein rannsókn var framkvæmd á Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Gögn voru fengin úr Krabbameinsskrá Íslands, Dánarmeinaskrá og sjúkraskrám sjúklinga.

Á árunum 2009–2019 greindust 904 sjúklingar með þvagvegakrabbamein á Íslandi. Aldursstaðlað nýgengi sjúkdómsins hélst stöðugt yfir rannsóknartímabilið þrátt fyrir aukningu í heildarfjölda tilfella. Flestir sjúklingar greindust með yfirborðslægt þvagblöðrukrabbamein, þar sem endurkoma var algeng. Innleiðing meðferðarstaðals fyrir sjúklinga sem gengust undir fyrstu heflunaraðgerð vegna yfirborðslægs þvagblöðrukrabbameins á Landspítala bætti fylgni við alþjóðlegar leiðbeiningar, þó áhrif á snemmkomna endurkomu væru takmörkuð. Greining sem tók tillit til endurtekinna endurkoma yfirborðslægs þvagblöðrukrabbameins bentu þó til þess að heildarbyrði endurkomu á hvern sjúkling hefði minnkað á Íslandi. Sjúklingar sem gengust undir róttækt blöðrubrottnám vegna þvagblöðrukrabbameins eða skurðaðgerð vegna krabbameins í efri þvagvegum höfðu lifun sambærilega við það sem lýst hefur verið í öðrum þýðisbundnum rannsóknum á Norðurlöndum. Hjá sjúklingum með langt genginn eða dreifðan sjúkdóm voru horfur slæmar og meðferðarval réðst að miklu leyti af aldri sjúklinga.

Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að þvagvegakrabbamein á Íslandi hefur svipað faraldsfræðilegt mynstur og meðferðarárangur og sést á hinum Norðurlöndunum. Endurkoma yfirborðslægs þvablöðrukrabbameins er áfram stórt klínískt vandamál, þótt vísbendingar séu um að heildarbyrði endurkomu sé minnkandi hér á landi, mögulega vegna framfara í meðferð og eftirfylgd sjúklinga.

Abstract

Urothelial carcinoma is among the most common malignancies worldwide, with high incidence rates in the Nordic countries. Bladder cancer represents the majority of urothelial carcinoma cases, whereas upper tract urothelial carcinoma is less common and often associated with poorer outcomes. The aim of this doctoral thesis was to describe the epidemiology, treatment, and outcomes of patients with urothelial carcinoma in Iceland.

This thesis is based on four observational cohort studies. Three were nationwide population-based studies including all patients diagnosed with urothelial carcinoma in Iceland during defined study periods, while one was a single-center study conducted at Landspítali University Hospital. Data were obtained from the Icelandic Cancer Registry, the Icelandic Cause of Death Registry, and patients‘ medical records.

Between 2009 and 2019, 904 patients were diagnosed with urothelial carcinoma in Iceland. Incidence rates remained stable during the study period despite an increase in the absolute number of cases. Most patients presented with non-muscle-invasive bladder cancer, where recurrence was common. The implementation of a standardized TURBT protocol at Landspítali improved adherence to guideline-recommended perioperative management, although its effect on early recurrence was limited. Analyses accounting for repeated recurrences suggested, however, that the cumulative recurrence burden per patient decreased over time in Iceland. Patients undergoing radical cystectomy for bladder cancer or surgery for upper tract urothelial carcinoma had survival outcomes comparable to those reported in other Nordic population-based studies. In advanced and metastatic disease, patient outcome was poor and treatment decisions were strongly influenced by patient age.

In conclusion, urothelial carcinoma in Iceland demonstrates epidemiological patterns and treatment outcomes similar to those observed in other Nordic countries. Disease recurrence remains a major clinical challenge, although the overall burden of recurrence appears to be decreasing over time, possibly reflecting improvements in treatment strategies and follow-up practices.

Um doktorsefnið

Oddur Björnsson er fæddur árið 1991 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá eðlisfræðideild Verslunarskóla Íslands árið 2011 og embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2017. Að loknu kandídatsári starfaði hann sem sérnámslæknir á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss frá 2018 til 2020. Oddur hóf doktorsnám í nóvember 2020 við Háskóla Íslands. Árið 2021 flutti Oddur til Svíþjóðar þar sem hann hefur samhliða doktorsnámi stundað sérnám í þvagfæraskurðlækningum. Hann lauk sérnámi í þeirri grein við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg í Svíþjóð árið 2025 og starfar þar sem þvagfæraskurðlæknir.

Foreldrar Odds eru Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur, og Gunnhildur Gísladóttir, efnafræðingur. Eiginkona Odds er Rósa Björnsdóttir, klínískur sálfræðingur, og börn þeirra eru Dagur Björn, Hólmar og Eysteinn.

Oddur Björnsson ver doktorsritgerð sína í  læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands föstudaginn 05. maí 2026.

Doktorsvörn í læknavísindum - Oddur Björnsson