
Bóksala stúdenta er á 2. hæð Háskólatorgs.
Meginmarkmið Bóksölunnar er að útvega nemendum við Háskóla Íslands kennslubækur og önnur námsgögn á sanngjörnu verði.
Bóksalan selur nemendum allar námsbækur sem þeir þurfa, ritföng og önnur námsgögn. Þar fást öll helstu fræðirit og handbækur. Einnig er á vef Bóksölunnar vefverslun með heimsendingarþjónustu.
Skiptibókamarkaðir
Skiptibókamarkaði er að finna í smáauglýsingum í Uglunni. Einnig reka nokkrar deildir og nemendafélög bóksölu fyrir sína nemendur