Skip to main content

Listavor í Sögu

Listavor í Sögu  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. maí 2026 10:30 til 14:30
Hvar 

Saga

Nánar 
Aðgangur ókeypis

List- og verkgreinakennarar í Sögu standa fyrir fjölbreyttum og lifandi viðburði þar sem sköpun, fagmennska og samvinna eru í forgrunni. Starfandi kennurum er boðið að taka þátt í smiðjum, fá innblástur úr ólíkum áttum og eiga samtal við kollega um kennslu og þróun list- og verkgreina.

Viðburðurinn er vettvangur til að endurnýja hugmyndir, deila reynslu og efla tengsl innan fagstéttarinnar í skapandi og hvetjandi umhverfi.

Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn til að hægt sé að áætla veitingar og tryggja viðeigandi rými fyrir smiðjurnar.

Skráning fer fram hér:
LISTAVOR Í SÖGU: Viðburður list- og verkgreinakennara 30. maí 2026 

Dagskráin hefst á notalegri samveru þar sem þátttakendur hittast yfir kaffi og spjalli. Að því loknu flytur Anne Bamford fyrirlestur, en að honum loknum gefst tækifæri til spurninga og umræðna. Eftir hádegishressingu í boði Menntavísindasviðs taka við fjölbreyttar smiðjur þar sem kennarar geta valið úr fimm listgreinum, dýpkað þekkingu sína og kynnst eða endurnýjað tengsl við aðra list- og verkgreinakennara.

Um Anne Bamford
Anne Bamford er gestaprófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og vel þekktur sérfræðingur á sviði menntunar. Hún vann að umfangsmikilli úttekt á stöðu listkennslu á Íslandi árin 2009–2010 og hefur frá árinu 2022 starfað sem gestaprófessor við HÍ. Rannsóknir hennar beinast meðal annars að nýsköpun í menntun, samfélagsáhrifum rannsókna, jafnrétti og fjölbreytileika.

Sem alþjóðlegur fræðimaður fyrir UNESCO hefur Anne stýrt umfangsmiklum mats- og úttektarrannsóknum fyrir stjórnvöld í fjölda landa, þar á meðal Danmörku, Hollandi, Belgíu, Íslandi, Hong Kong, Írlandi og Noregi. Hún hefur ritað fjölda greina og bókakafla, þar á meðal bókina The Wow Factor: Global Research Compendium on the Impact of the Arts in Education, sem hefur verið gefin út á fimm tungumálum og dreift til yfir 40 landa.

Dagskrá

10:30–11:00 Morgunkaffi – hittumst og spjöllum
11:00–11:45 Ávarp Anne Bamford: The State of the Art in Education – fjallað um list- og verkgreinar í menntun á Íslandi og víðar
11:45–12:15 Umræður
12:15–13:00 Léttur hádegisverður
13:00–14:30 Smiðjur – val um fimm listgreinar

Athugið að lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna hefst í Sögu kl. 14 sama dag.

Lýsingar á smiðjum

Hönnun og smíði - 0.hæð

„Græn stund“ er smiðja þar sem tálgaðar eru dularfullar verur eða annað úr mjúkum íslenskum trjávið. Kynnt verða einföld læst hnífsbrögð með áherslu á persónulega sköpun. Þátttakendur efla tengsl við náttúruna og rækta núvitund í gegnum handverk.
Kennari: Signý Magnúsdóttir

Leiklist - 1.hæð

Unnið verður með aðferðir leiklistar og leikja í námi með áherslu á samþættingu við greinar á borð við stærðfræði, íslensku og samfélagsfræði. Þátttakendur taka þátt í skapandi og praktískum verkefnum.
Kennarar:
Rannveig Björk Þorkelsdóttir
Jóna Guðrún Jónsdóttir
Halldóra Rósa Björnsdóttir

Sjónlistir- 2.hæð

Kynning á Sjónlistastofunni, nýju sérhæfðu kennslurými, ásamt örsmiðju þar sem unnið er með fjölbreyttan efnivið og tækni. Markmið er að efla samtal og tengsl milli vettvangs og háskólasamfélags.
Kennari: Hanna Ólafsdóttir

Textíll og hönnun -2.hæð

Fjallað verður um eldri og nýjar textílaðferðir og framtíð þeirra í námi. Þátttakendur ræða áherslur og tengingu textílgreinarinnar milli skólastiga.
Kennari: Ásdís Ósk Jóelsdóttir

Tónlist - 2.hæð

Kenndir verða fjölbreyttir tónlistarleikir, söngvar, klappleikir, dansar og hljóðfæraleikir sem nýtast beint í kennslu. Einnig verður kynnt ný vefsíða með kennsluefni fyrir tónmenntakennara.
Kennari: Helga Rut Guðmundsdóttir