Doktorsvörn í umhverfisfræði - Teemu Jama

Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Streymi á Zoom:
https://eu01web.zoom.us/j/68213094750
Doktorsefni:
Teemu Jama
Heiti ritgerðar:
Zoning For Zero – Loftslagsáhrif skipulagsáætlana í norrænu samhengi
Andmælendur:
Dr. Fabio Hernández Palacio, dósent við Department of Security, Economics, and Planning, Háskólinn í Stavanger, Noregi
Dr. Juho Rajaniemi, prófessor við School of Architecture, Tampere Háskóli, Finnlandi
Leiðbeinandi:
Dr. Jukka Heinonen, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Háskóla Íslands
Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Elisa Lähde, prófessor við Department of Architecture, Aalto Háskóla, Finnlandi
Dr. Henrikki Tenkanen, prófessor við Department of Built Environment, Aalto Háskóla, Finnlandi
Doktorsvörn stýrir:
Dr. Hrund Ólöf Andradóttir, prófessor og deildarforseti Umhverfis- og byggingaverkfræðideildar HÍ
Ágrip:
Í þessari ritgerð eru loftslagsáhrif borgarskipulags rannsökuð, með áherslu á helstu stofnanalegu afurð þess: skipulagsáætlanir. Aðferðafræðilegt framlag ritgerðarinnar felst í því að greina skipulagsviðmið, sem venjulega er fjallað um á eigindlegan hátt út frá gildismati, með megindlegum aðferðum sem byggja á nákvæmum staðbundnum gögnum um hið byggða umhverfi, flokkuðum eftir skipulagsskilgreiningum þeirra. Með því að beita blandaðri aðferðafræði sem byggir á gagnrýninni raunhyggju, leggur ritgerðin fram megindlegar vísbendingar um hvernig landnotkunarskipulag hefur áhrif á kolefnisspor borgarþróunar, ásamt eigindlegri greiningu á þeim ferlum sem liggja að baki þessum vísbendingum. Megindlegar niðurstöður úr norrænum tilfellarannsóknum vega að ríkjandi hugmyndum úr tveimur áttum. Annars vegar virðist þétt, skilvirknismiðað skipulag ekki stuðla að lágkolefnislífstíl eins og haldið hefur verið fram; þess í stað ýtir það undir kolefnisfreka hegðun með aukinni neyslu og auknum ferðalögum. Hins vegar er dreifðara skipulag, sem almennt er talið ósjálfbært, ríkjandi á svæðum þar sem íbúar hafa lægri kolefnisspor og heildarlosun, jafnvel þegar tekið hefur verið tillit til tekna og heimilishalds. Niðurstöðurnar sýna fram á orsakamátt skipulags við að móta losun á heimsvísu neðan frá og upp, þótt því sé nú beitt á gagnstæðan hátt. Í ritgerðinni er sýnt fram á og færð rök fyrir því að notkun skipulagsáætlana til að stýra loftslagsáhrifum — í stað þess að nota byggingarrétt byggðan á skilvirknimælikvörðum á hvern íbúa — sé ekki aðeins raunhæf og sögulega verjanleg endurskilgreining á skipulagi, heldur einnig nauðsynleg til þess að skipulagsmál haldi opinberu umboði sínu sem frjálslynt forsjárhyggjutæki í þágu sjálfbærrar þróunar.
Um doktorsefnið:
Teemu Jama er þverfaglegur arkitekt, skipulagsfræðingur og rannsakandi í city science. Hann leggur metnað sinn í að stuðla að skynsemi og næmi í borgarhönnun og rannsóknum sem hafa jákvæð áhrif. Teemu býr yfir tveggja áratuga fjölbreyttri reynslu af skipulagningu, hönnun og rannsóknum á ólíkum mælikvörðum, hvort tveggja innan opinbera geirans, í ráðgjöf og innan háskólasamfélagsins.
Doktorsefnið Teemu Jama
