Skip to main content

Fuglaskoðun í Grafarvogi

Fuglaskoðun í Grafarvogi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. apríl 2026 11:00 til 13:00
Hvar 

Hefst við Grafarvogskirkju

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Gönguferð í röðinni með Fróðleik í fararnesti, með Ferðafélagi barnanna og Háskóla Íslands.

Núna þegar farfuglarnir eru að flykkjast heim til landsins er vorið komið og sumarið á næsta leiti. Nemendur Háskóla Íslands í líffræði munu leiða ferð um Grafarvog þar sem fuglarnir safnast saman. Hittumst kl. 11 við Grafarvogskirkju en þaðan göngum við meðfram voginum og beinum sjónum án þess að valda truflun að farfuglum sem verða á leirunum.

Gott er að koma með sjónauka og gjarnan fuglabækur og auðvitað að klæða sig eftir veðri.

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta! Tími: 2 klst.