Doktorsvörn í guðfræði: Fritz Már Jörgensson Berndsen

Aðalbygging
Hátíðasal
Mánudaginn 20. apríl 2026 fer fram doktorsvörn við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Þá ver Fritz Már Jörgensson Berndsen doktorsritgerð sína í guðfræði, Áföll, vald, samskipti: Upplifun prédikarans á átakatímum í ljósi prédikunarfræði. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.
Andmælendur við vörnina verða Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands og Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, aðjunkt í guðfræði við Háskóla Íslands. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Sigríðar Guðmarsdóttur, prófessors í guðfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Hjalti Hugason, prófessoer emeritus við Háskóla Íslands, Pétur Pétursson, prófessor ermeritus við Háskóla Íslands og Þorbjörn Broddason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands.
Arnfríður Guðmundsdóttir, deildarforseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Doktorsrannsóknin er þverfagleg og snertir bæði félagsfræði og guðfræði. Ritgerðin byggir á eigindlegri viðtalsrannsókn þar sem rætt er við presta um prédikun á tímum átaka og áfalla. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu presta af því að prédika í kjölfar efnahagshruns, áfalla og erfiðra mála er vörðuðu bæði íslenskt samfélag og þjóðkirkjuna. Ein af stærstu áskorunum rannsóknarinnar snýr að áhrifum ólíkra birtingarmynda valds á prédikun, þar með talið mögulegri valdamiðlun eða misbeitingu valds. Fræðileg umræða um áföll og vald innan prédikunarfræða hefur skapað svigrúm fyrir nýjar rannsóknir á þessum þáttum. Doktorsrannsóknin dregur fram þætti sem hafa áhrif á prédikarann og starf hans og sýnir hvernig samfélagslegar aðstæður og átök innan þjóðkirkjunnar endurspeglast í líðan, prédikun og sjálfsmynd presta.
Um doktorsefnið
Fritz Már Jörgensson Berndsen lauk BA-, Mag.theol.- og MA-prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands. Hann lauk jafnframt námi í sáttamiðlun árið 2019. Fritz er með diplómapróf í félagsráðgjöf frá HÍ, með áfengis- og vímuefnafræði sem sérsvið, auk diplómaprófs í klínískri faghandleiðslu frá félagsráðgjafadeild skólans. Hann starfar nú sem prestur í Keflavíkurkirkju og rekur eigin stofu þar sem hann sinnir handleiðslu, sáttamiðlun, stuðningi og ráðgjöf, auk þess að halda námskeið og fyrirlestra. Fritz Már er einnig stundakennari við Háskóla Íslands.
Fritz Már Jörgensson Berndsen
