Skip to main content

Lesfimi og orðaforði aukinn með PALS félagakennslu og Starling

Lesfimi og orðaforði aukinn með PALS félagakennslu og Starling - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. apríl 2026 14:30 til 16:00
Hvar 

Gerðuberg, Breiðholti

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fræðslufundurinn, Lesfimi og orðaforði aukinn með PALS félagakennslu og Starling fer fram í Gerðubergi, Breiðholti miðvikudaginn 8. apríl kl. 14.30 - 16.00. 

Viðburðurinn er á vegum Hólabrekkuskóla, Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna.

Fundarstjóri verður Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla. 

Á fræðslufundinum munu þau Dr. Emma Vardy og Aaron Jordan fjalla um þróun kennsluhátta og gerð kennsluefnisins Starling. Einnig munu Amelia Jara Larimer og Sólveig Edda Ingvarsdóttir kynna innleiðingu aðferðarinnar í Hólabrekkuskóla, áskoranir og tækifæri.  

Lestrarkennsluaðferðin Starri var þróuð í gegnum samstsarf LEAD Academy Trust og Notttingham Trent Háskólans árið 2021. Höfundar aðferðarinnar, Aaron Jordan og Emma Vardy, sáu að í orðaforðakennslu í grunnskólum Bretlands vantaði nálgun til að flýta þróun orðaforðaþekkingu nemenda, og að slík nálgun myndi hafa jákvæð áhrif á lesskilning. Námsaðferðin gefur kennurum gagnreyndar kennsluaðferðir við orðaforðavinnu. Tilgangur hennar er að hjálpa öllum börnum breikka og dýpka orðaforða sinn til þess að lesskilningur aukist. Haustið 2025 hófst samstarf höfunda við sérfræðinga frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Hólabrekkuskóla um innleiðingu og aðlögun efnisins fyrir íslenska nemendahópa.  

Dr. Emma Vardy starfar við Nottingham Trent háskólann. Rannsóknir hennar eru á sviði sálfræði menntunar, einkum tengt læsi barna. Dr. Vardy hefur sérstakan áhuga á viðhorfi til lestrar, lestrarhvatningu og yndislestri grunn- og framhaldsskólanema. Nýjustu greinar hennar fjalla um sjónarhorn foreldra á fjölbreytileika lesefnis barna þeirra og um þátttöku dýra umhverfi menntastofnana. Dr. Vardy hefur einnig unnið að gerð leiðbeininga fyrir mat á innleiðingu og framkvæmd hjá TASO (Transforming access and outcomes for students).  

Aaron Jordan er aðstoðarskólastjóri í grunnskóla í Leicestershire. Hann hefur kennt á yngsta og miðstigi í 18 ár og hefur verið aðstoðarskólastjóri í 13 ár. Hlutverk hans er meða annars að stýra kennslu í ensku og lestri þvert á skólann (LEAD Academy Trust), innleiða kennsluaðferðir í lestri og þróa lestrarmenningu. Aaron tók þátt í PALS-UK rannsókninni sem hófst haustið 2019 og hefur í samvinnu við Dr. Emmu Vardy þróað nýja nálgun við að greina, kenna og meta orðaforða. 

Athugið að sætaframboð er takmarkað. Skráið ykkur því sem fyrst. 

Skráning á viðburðinn hér

Fræðslufundurinn, Lesfimi og orðaforði aukinn með PALS félagakennslu og Starling fer fram í Gerðubergi, Breiðholti miðvikudaginn 8. apríl kl. 14.30 - 16.00. 

Lesfimi og orðaforði aukinn með PALS félagakennslu og Starling