Nýjustu rannsóknir í viðskiptafræði á ráðstefnunni Viðskipti og vísindi

Störfin sem hverfa og störfin sem verða til í fjármálageiranum, fjárfestingar kvenna, gervigreind í ráðningum, aðfengi innflytjenda að fjármálaþjónustu, fjármál og sjálfbærni og þjónustu- og mannauðsstjórnun er meðal þess sem verður til umræðu á hinni árlegu ráðstefnu Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands, Viðskipti og vísindi. Ráðstefnan hófst laugardaginn 14. mars og stendur til föstudagsins 20. mars og fer bæði fram á Háskólatorgi og utan skólans.
Þetta er í fjórða sinn sem ráðstefnan er haldin en þar mætist fræðafólk úr háskólasamfélaginu og stjórnendur, sérfræðingar og leiðtogar úr fyrirtækjum víða úr atvinnulífinu og ræða þau viðfangsefni sem móta framtíð viðskipta og atvinnulífs. Í erindum, pallborðsumræðum og sófaspjalli deila þau reynslu sinni af því hvernig ný þekking og ný tækni breytir starfsháttum fyrirtækja og vinnumarkaði.
Á ráðstefnunni gefst einstakt tækifæri til að kynna sér nýjustu rannsóknir innan viðskiptafræði og um leið öðlast innsýn í reynslu atvinnulífs af innleiðingu nýrrar þekkingar. Ráðstefnan er opin öllum og hægt er að kynna sér dagskrá hennar á vef hennar og Facebook-síðu.
