Skip to main content

Vorbrautskráning Háskóla Íslands 2026

Vorbrautskráning Háskóla Íslands 2026 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. júní 2026 10:00 til 15:30
Hvar 

Frjálsíþróttahöllin í Laugardal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Brautskráning kandídata í grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal laugardaginn 13. júní.

Brautskráningunni verður skipt í tvær athafnir og er hún opin bæði brautskráningarkandídötum og gestum þeirra.

Kandídatar eru beðnir um að mæta eigi síðar en 30 mínútum fyrir athöfn. Hver kandídat má taka með sér tvo gesti.

  • Fyrri athöfnin hefst kl. 10 en þá taka nemendur í grunn- og framhaldsnámi við Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið og Hugvísindasvið við prófskírteinum.
  • Sú síðari hefst kl. 13.30 en þá taka nemendur í grunn- og framhaldsnámi við Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið við skírteinum sínum.

Athugið að með því að taka þátt í brautskráningarathöfn skuldbinda kandídatar sig til að yfirgefa ekki salinn fyrr en að athöfn lokinni.

Brautskráningarkandídatar fá sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna þegar nær dregur.

Starfsfólk Háskólans verður enn fremur á staðnum á brautskráningunni og leiðbeinir kandídötum um sætaskipan.

Brautskráning kandídata í grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal laugardaginn 13. júní.

Vorbrautskráning Háskóla Íslands 2026