Skip to main content

Doktorsvörn í viðskiptafræði: Hanna Kristín Skaftadóttir

Doktorsvörn í viðskiptafræði: Hanna Kristín Skaftadóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. mars 2026 14:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Doktorsvörn: Hanna Kristín Skaftadóttir mun verja doktorsritgerð sína í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: „Gervigreind og sjálfvirknivæðing ferla í viðskiptum. Stjórnun sjálfvirknivæddra umbreytinga: Innleiðing gervigreindar, stjórnkerfisbreytingar og greining á gagnadrifnum aðferðum.“ Vörnin fer fram á ensku og er öllum opin.  

Heiti ritgerðar: Hvernig innleiðum við gervigreind á ábyrgan hátt? 

Andmælendur: Dr. Miklos A. Vasarhelyi, prófessor við Rutgers University, og Dr. Chanyuan (Abigail) Zhang Parker, aðstoðarprófessor við University of Texas at San Antonio. 

Leiðbeinandi: Dr. Hersir Sigurgeirsson, Prófessor við Háskóla Íslands og Dr. Galena Pisoni, Lecturer in Data Analytics, York Business School. 

Doktorsnefnd: Dr. Galena Pisoni og Dr. Páll Ríkharðsson Melsted, Chief Executive Officer, Planet Youth. 

Doktorsvörn stýrir: Magnús Þór Torfason forseti Félagsvísindasviðs 

 

Efniságrip:  

Markmið doktorsverkefnisins var að varpa ljósi á hvernig gervigreind og sjálfvirknivæðing ferla (RPA) eru innleidd í atvinnulífinu, með sérstaka áherslu á fjármálageirann. Rannsóknin er þverfagleg og tekur á þremur meginþáttum: siðferðilegu regluverki Evrópusambandsins, áhrifum leiðtogastíla á viðhorf starfsfólks og tæknilegum aðferðum til að gera flókin gervigreindarlíkön skiljanlegri fyrir notendur. Helstu niðurstöður benda til þess að tæknin ein og sér dugi skammt ef stjórnun og menning fylgja ekki með. Hvetjandi forysta og skýr samskipti eru lykilatriði til að draga úr ótta starfsfólks og auka traust á sjálfvirkum kerfum. Þá sýna niðurstöður að með því að nýta loðna rökfræði (e. fuzzy logic) megi breyta flóknum tölfræðigögnum í málfræðilegar samantektir á mannamáli. Þannig verða niðurstöður gervigreindar ekki aðeins nákvæmari heldur einnig gagnærri og nýtanlegri fyrir stjórnendur og eftirlitsaðila. 

Um doktorsefnið: 

Hanna Kristín Skaftadóttir er með M.Acc. gráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með lögfræði sem aukagrein. Samhliða doktorsnáminu hefur hún starfað sem fagstjóri viðskiptagreindar og lektor við Háskólann á Bifröst, ásamt því að kenna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Hanna Kristín situr í stjórn nýsköpunarfyrirtækisins Hefring Marine ásamt því að eiga sæti i stjórn EU AI Standardization JTC21 tækninefnd á Íslandi. Hanna Kristín hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, en hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri Poppins & Partners, leiðandi fyrirtæki á Ísland í ráðgjöf á sviði nýsköpunar, og þar á undan var hún sérfræðingur hjá Deloitte og KPMG. Doktorsnámið var styrkt af Félagi löggiltra endurskoðenda (FLE) og Háskóla Íslands. 

Doktorsvörn í viðskiptafræði: Hanna Kristín Skaftadóttir

Doktorsvörn í viðskiptafræði: Hanna Kristín Skaftadóttir