Doktorsvörn í sagnfræði: Meghan Anne Korten

Aðalbygging
Hátíðasalur
Þriðjudaginn 24. mars 2026 fer fram doktorsvörn við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði Háskóla Íslands. Þá ver Meghan Anne Korten doktorsritgerð sína í sagnfræði, Intertwined Threads: The Value and Function of Vaðmál as Cloth and Money, and Beyond. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.
Andmælendur við vörnina verða Susanna Harris, lektor við háskólann í Glasgow í Skotlandi, og Eva Andersson, lektor við háskólann í Gautaborg í Svíþjóð. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Sverris Jakobssonar, prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Agnes Arnórsdóttir, dósent við háskólann í Árósum í Danmörku og Helgi Þorláksson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands.
Gauti Kristmannsson, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Vaðmál var aðalgjaldmiðill og verslunarvara á miðöldum á Íslandi, auk þess sem það var fjölnota vefnaðarvara til klæðagerðar og annarra nota. Í ritgerð sinni fjallar Meghan Anne Korten um hvernig efnislegir eiginleikar og gæði vaðmáls mótuðu hlutverk þess sem gjaldmiðils og útflutningsvöru. Enn fremur verður kannað hvernig vaðmál miðlaði stöðu og sjálfsmynd í samfélaginu. Rannsóknin byggir á heimildum frá 12.–14. öld, þar á meðal Íslendingasögum, samtíðarsögum, Grágás, Jónsbók, máldögum og annálum. Leitast er við að greina fimm helstu nýtingarform vaðmáls: sem efnislega, fagurfræðilega, í viðskiptum, við tengslamyndun og sem félagslegt aðgreiningartæki. Niðurstöðurnar sýna að framleiðsla, notkun og viðskipti voru órjúfanlega tengd og endurspegla félagslega, efnahagslega og menningarlega vídd vaðmáls.
Um doktorsefnið
Meghan Anne Korten er með BA-gráðu í sagnfræði frá Brock-háskóla í St. Catharines í Ontario og MA-gráðu frá Memorial University of Newfoundland í St. John’s á Nýfundnalandi.
Meghan Anne Korten
