Tómstundadagurinn - Mikilvægir aðrir í lífi fólks

Saga
S-114
Tómstundadagurinn er árlegur viðburður námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og Rannsóknarstofu í tómstundafræði.
Markmið með Tómstundadeginum er að vekja athygli á mikilvægi tómstunda og félagsstarfs fyrir samfélög, lífsgæði og þroska einstaklinga, styðja við samtal fagvettvangs og fræðasamfélags og beina sjónum að því sem er efst á baugi hverju sinni.
Tómstundadagurinn var fyrst haldinn árið 2015 að tilstuðlan námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og Rannsóknarstofu í tómstundafræði. Tómstundadagurinn hefur verið haldinn nær óslitið síðan og með ólíku sniði. Nemendur, fagfélög og fagvettvangur hafa alla jafna komið að deginum með einum eða öðrum hætti og þema Tómstundadagsins tengist alla jafna einhverju sem er efst á baugi hverju sinni. Sjónum hefur verið beint að eldri borgurum og tómstundum þeirra, óformlegu námi barna og unglinga í gegnum tómstundaþátttöku og frístundastarf, áskorunum sem fylgja tækni og samfélagsmiðlum, einelti, farsæld og útiveru svo eitthvað sé nefnt.
Að þessu sinni er yfirskrift Tómstundadagsins Mikilvægir aðrir í lífi fólks. Þar er vísað til hlutverks og fagmennsku þeirra sem starfa á vettvangi frítímans að tómstunda- og félagsstarfi með fólki á ólíkum aldri. Sjónum er alla jafna helst beint að börnum, unglingum og ungu fólki en tómstunda- og félagsmálafræðingar starfa m.a. einnig á heilbrigðisstofnunum, við endurhæfingu og við viðburðahald svo eitthvað sé nefnd.
Tómstundadagurinn er í samstarfi við Félag fagfólks í frítímaþjónustu og
Fagfrí - Landssamtök um fagþróun frístundaheimila