Inngilding í íslensku háskólasamfélagi
Verkefnið Inngilding í íslensku háskólasamfélagi er samstarfsverkefni opinberu háskólanna á Íslandi: Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands. Markmið verkefnisins er að efla inngildingu, þátttöku og stuðning við nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íslensku háskólasamfélagi.
Í verkefninu er unnið að því að greina stöðu og reynslu nemenda með erlendan bakgrunn, draga fram helstu áskoranir og tækifæri og þróa leiðir sem styðja við betri móttöku, aðgengi, vellíðan og námsárangur. Verkefnið byggir á samstarfi háskólanna, samtali við nemendur og reynslu starfsfólks sem kemur að kennslu, þjónustu og stuðningi.
Efni og afurðir
Á þessari síðu verður birt efni sem verður til í tengslum við verkefnið. Þar má meðal annars finna skýrslur, kynningar, fræðsluefni, verkfæri og annað hagnýtt efni sem styður við inngildingu í háskólasamfélaginu.
Markmiðið er að gera niðurstöður og afurðir verkefnisins aðgengilegar þeim sem vinna að móttöku, kennslu, þjónustu, stefnumótun og stuðningi við fjölbreyttan nemendahóp. Efnið verður birt jafnóðum og það verður tilbúið og er ætlað að nýtast háskólum, starfsfólki, nemendum og öðrum sem vilja stuðla að opnara, aðgengilegra og inngildandi háskólasamfélagi.
Staða og upplifun nemenda með erlendan bakgrunn í opinberum háskólum á Íslandi
Status and Experiences of Students with a Foreign Background in Public Universities in Iceland