Skip to main content

LED Nordic: Ráðstefna um hönnun námsumhverfis á Norðurlöndum

LED Nordic: Ráðstefna um hönnun námsumhverfis á Norðurlöndum  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. apríl 2026 9:00 til 12:00
Hvar 

Edda

Fyrirlestrarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

LED Nordic: A Hybrid Seminar on Nordic Learning Environment Design 

Morgunráðstefna ætluð öllum áhugasömum um hönnun skólabygginga. Hádegisverður í Sögu og skoðunarferð einnig í boði.

Skráning: Til föstudags 10. apríl 2026, sjá hér: REGISTRATION FORM

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á fæti eða neti á ráðstefnu ætlaða öllum sem láta sig hönnun og rannsóknir á námsumhverfi í skólabyggingum varða, þar á meðal rannsakendum, fulltrúum ríkis og sveitarfélaga, stjórnendum í menntakerfi og skólum, kennurum, arkitektum og hönnuðum. 

Ráðstefnan er liður í norræna rannsóknar- og þróunarverkefninu LED Nordic um áhrif hönnunar á námsumhverfi á kennslu, nám og velferð frá norrænu sjónarhorni eða LED Nordic - Impact of Learning Environment Design on Teaching, Learning, and Wellbeing: A Nordic Perspective, Nordplus Horizontal-verkefni 2024 til 2026 byggt á þátttöku rannsakenda, sveitarfélaga og framleiðenda frá Norðurlöndunum fimm.

Markmið með ráðstefnunni er styrkja þverfagleg tengsl fagfólks og sérfræðinga í hönnun og rannsóknum á umhverfi skólastarfs. 

Helstu þættir dagskrár:

  • Kynningar gestgjafa við Háskóla Íslands og hjá Reykjavíkurborg á nýstárlegu og breytilegu umhverfi náms og kennslu í nýlegum byggingum íslenskra grunnskóla.
  • Yfirlit norrænna rannsakenda um athyglisverðustu þætti samvinnuverkefnisins LED Nordic 2024 til 2026. Sagt verður frá samantekt á rannsóknum á námsumhverfi norrænna skólabygginga, fjallað um inngildingu við hönnun skóla og sýndar myndir frá heimsóknum rannsóknarhópsins í nýstárlegar skólabyggingar á Norðurlöndum.
  • Erindi gestafyrirlesarans Jennifer Charteris frá New England-háskóla í Ástralíu um endurskipan rýma í skólum, endurhönnun og ferska hugsun í skólastarfi ásamt umfjöllun skólastjóra af innlendum vettvangi um reynsluna af nýju umhverfi.

Hádegisverður og skoðunarferðir:

Hádegisverður án endurgjalds og stutt skoðunarferð um nýuppgerð húsakynni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Sögu verða í boði eftir að dagskrá í Eddu lýkur. Einnig verður mögulegt að taka þátt í skoðunarferð um grunnskólabyggingu með nýju sniði á höfðuborgarsvæðinu síðar sama dag (mögulega þarf að takmarka fjölda og láta röð skráninga ráða þátttöku).

Dagsetning: Miðvikudag 15. apríl 2026 kl. 9:00 til 12:00

Skráning: Til föstudags 10. apríl 2026, sjá hér: REGISTRATION FORM

Tungumál: Enska

Aðgengi: Aðgengi fyrir öll í húsakynnum Eddu og Sögu

Staðsetning: Fyrirlestrarsalur í Eddu – Húsi íslenskunnar, Arngrímsgötu 5, Reykjavik

Vefslóð til þátttöku á neti: Verður dreift í kjölfar skráningar

Skipulag: Háskóli Íslands, Menntavísindasvið og Reykjavíkurborg í samvinnu við LED Nordic undir forystu Háskólans í Jyväskylä. Skólastjórafélag Íslands á einnig aðild að viðburðinum.

Gjald: Ráðstefnan, veitingar og skoðunarferðir eru án endurgjalds

__________________

DAGSKRÁ

LED Nordic: Ráðstefna um hönnun námsumhverfis á Norðurlöndum 

Edda - Hús íslenskunnar, Arngrímsgata 5, Reykjavik Fyrirlestrarsalur E-103

8:40–9:00
Koma og skráning

Fundarstjóri: Anna Kristín Sigurðardóttir, Háskóli Íslands

9:00–9:05
Welcoming words

9:05–9:35
Torfi Hjartarson, Háskóli Íslands og Þórdís Eik Friðþjófsdóttir, Reykjavíkurborg:
Innovative learning environments in recent Icelandic school buildings

9.35–9:50
Tiina-Maria Mäkelä, University of Jyväskylä, Finnlandi:
Introduction to LED Nordic

9:50–10:10
Palmyre Pierroux, Universitet i Oslo, Noregi og Bodil Hovaldt Bøjer, Det Kongelige Akademi, Danmörku:
Review of Nordic research literature on physical learning environments, themes, and  methods

10:10–10:30
Kaffi og veitingar

10:30–11:00
Kirsten Haase, Gladsaxe, Denmörku; Colin Campbell, Ecophon, Svíþjóð; Markku Lang, Oppimaisema Oy/Sari Lehtonen, Helsinkiborg, Finnlandi; Siv Marit Stavem, Norconsult, Noregi og Þórdís Eik Friðþjófsdóttir, Reykjavikurborg:
Photographs from pilot study visits to school buildings in Nordic countries

11:00–11:10
Raija Kattilakoski, Positiimi, Finnlandi:
Inclusion and Nordic learning environment design

11:10–11:35
Jennifer Charteris, University of New England, Ástralíu:
Respatialisation in schools: redesigning spaces and reimagining pedagogy

11:35–11:50
Gerður Magnúsdóttir, Barnaskóla Kársness, Kópavogi:
Making the most of new learning environments in daily school practice

11:50–12:00
Closing words

__________________

Saga, ný húsakynni Menntavísindasviðs við Hagatorg, Reykjavík

Háma í Sögu
12:15–13:00
Hádegisverður án endurgjalds fyrir ráðstefnugesti

13:00–13:40
Kynnisferð um Sögu

__________________

Barnaskóli Kársness, leikskóli og grunnskóli fyrir 1. til 4. bekk,
ný skólabygging við Skólagerði í Kópavogi

Barnaskóli Kársness
14:30 to 15:30
Skólaheimsókn

________________________

Frekari upplýsingar:

Umsjón á Íslandi:
Torfi Hjartarson dósent
torfi@hi.is
Menntavísindasvið
Háskóli Íslands

Umsjón með LED Nordic-verkefni:
Dr. Tiina-Maria Mäkelä
tiina.m.makela@jyu.fi
Finnish Institute for Educational Research
University of Jyväskylä

LED Nordic: Ráðstefna um hönnun námsumhverfis á Norðurlöndum haldin í Eddu miðvikudaginn 15. apríl 2026 frá kl. 9:00 til 12:00.

LED Nordic: Ráðstefna um hönnun námsumhverfis á Norðurlöndum