Skip to main content
21. janúar 2025

Alþjóðaár jökla hafið - viðburðir í HÍ á árinu

Alþjóðaár jökla hafið - viðburðir í HÍ á árinu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ísland tekur þátt í viðburðum sem skipulagðir eru í tilefni af Alþjóðaári jökla, sem hófst formlega í dag, 21. janúar. Fulltrúar Háskóla Íslands koma að viðburðum á árinu og einn þeirra verður haldinn í Veröld – húsi Vigdísar og Loftskeytastöðinni 21. mars 2025, á fyrsta Alþjóðadegi jökla.

Sameinuðu þjóðirnar standa fyrir átakinu og er það leitt af Menningarmálastofnun SÞ (UNESCO) og Alþjóðaveðurmálastofnuninni (WMO). Í desember árið 2022 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna þá ályktun að 2025 yrði Alþjóðaár jökla á hverfanda hveli og að Alþjóðadagur jökla yrði 21. mars ár hvert.

Markmið verkefnisins er að vekja athygli á áhrifum loftslagsbreytinga á jökla heimsins og þeim afleiðingar sem rýrnun þeirra hefur á vistkerfi, samfélög og efnahag. Skipulagning viðburða á Íslandi er í höndum fulltrúa frá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Jöklarannsóknafélagi Íslands, Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans, Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands, Náttúruverndarstofnun, Náttúrufræðistofnun og Náttúruminjasafni Íslands.

Sérstakur viðburður verður haldinn í Veröld – húsi Vigdísar og Loftskeytastöðinni, 21. mars 2025, á fyrsta Alþjóðadegi jökla.

Samkeppni á meðal barna- og ungmenna á aldrinum 10–20 ára

Í tilefni af degi jökla er efnt er til samkeppni á meðal barna- og ungmenna á aldrinum 10–20 ára. Óskað er eftir verkum sem varpa ljósi á mikilvægi og eðli jökla, fegurð þeirra og hversu hverfulir þeir eru. Tillögur á öllum tungumálum eru velkomnar. Hugmyndum má skila í mynd- og/eða ritmáli. Verkið getur t.d. verið skoðanagrein, pistill, örsaga, prósaljóð, myndaritgerð, myndskýrsla, myndasaga eða vídeóverk. Litið verður sérstaklega til þess að verkefnin endurspegli persónulega sýn þátttakenda. Öllum tillögum skal skila inn rafrænt (PDF, JPEG, PNG, myndband)  á netfangið felag@un.is ásamt upplýsingum um nafn, skóla, aldur, netfang og símanúmer. Skilafrestur er til og með 2. mars 2025. Sjá nánari upplýsingar á vef samkeppninnar.
 

„Jöklar eru lykilþáttur í vatnshringrás jarðar og rýrnun þeirra ein helsta vísbending okkar um hraðar loftslagsbreytingar,“ segir Eva Harðardóttir, lektor við HÍ og formaður Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. „Alþjóðaár jökla á hverfanda hveli er einstakt tækifæri til að vekja vitund, efla fræðslu og hvetja til aðgerða til að vinna gegn rýrnun þessara dýrmætu náttúruauðlinda.“

Frá og með deginum í dag munu fjölbreytt verkefni og viðburðir fara fram hér heima og erlendis til þess að vekja athygli á mikilvægi jökla, snævar og íss í vatnafræðilegu og veðurfarslegu samhengi og ekki síður efnahagslegu, samfélagslegu og umhverfislegu tilliti. Að þessu sinni mun dagur vatns (22. mars) einnig verða tileinkaður jöklum. 

Á viðburði í Veröld Vigdísar á Alþjóðadegi jökla gefst gestum tækifæri á að fræðast um jöklabreytingar á Íslandi og í heiminum, framtíðarhorfur íslenskra jökla og samgleðjast ungu kynslóðinni sem mun spreyta sig í samkeppni. Þennan dag verður einnig opnuð sýning á neðri hæð Loftskeytastöðvarinnar, tileinkuð hörfandi jöklum.

Sunnudaginn 6. apríl verður sérstakur jöklaviðburður á vegum Náttúruminjasafns Íslands í samstarfi við Jöklarannsóknafélag Íslands og Náttúruverndarstofnun á sýningu safnsins, Vatnið í náttúru Íslands á 2. hæð Perlunnar. 

Markmið Alþjóðaárs og Alþjóðadags jökla eru meðal annars:

  • Að efla vitund um áhrif loftslagsbreytinga á jökla og hvaða afleiðingar rýrnun jökla hefur á vistkerfi, fyrir náttúruvá og samfélög
  • Að stuðla að aukinni fræðslu um mikilvægi jökla í vatnshringrás jarðar, fyrir samfélög og efnahag
  • Að minna á að jöklar eru stærsta ferskvatnsforðabúr heims og milljónir manna eru háðir tilvist þeirra
  • Bræðsluvatn jökla veldur hækkun í heimshöfunum sem hefur áhrif á strandsvæði út um allan heim
  • Að hvetja til sameiginlegra aðgerða til að sporna enn frekar við losun gróðurhúsalofttegunda
  • Að efla rannsóknir og vöktun og auka samstarf vísindamanna

Fjölmiðlar og almenningur eru hvattir til þess að kynna sér víðtæk efnahagsleg, félagsleg og umhverfisleg áhrif sem yfirvofandi rýrnun á freðhvolfi jarðar hefur. 

Frekari upplýsingar um Alþjóðaár jökla á hverfanda hveli og Alþjóðadag jökla er að finna á vef átaksins og hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

jökla

Fulltrúar Háskóla Íslands eru meðal þeirra sem taka þátt í viðburðum í tilefni Alþjóðaárs jökla hér á landi.