Skip to main content
8. janúar 2025

Þrjár umsóknir um starf forseta Félagsvísindasviðs

Þrjár umsóknir um starf forseta Félagsvísindasviðs - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þrjár umsóknir bárust um starf forseta Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands en umsóknarfrestur rann út 6. janúar sl.

Forseti Félagsvísindasviðs er ráðinn af rektor til fimm ára. Hann starfar í umboði rektors, er yfirmaður fræðasviðsins, stýrir daglegri starfsemi og er akademískur leiðtogi þess. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skipar rektor sérstaka nefnd til að undirbúa ákvörðun um ráðningu forseta fræðasviðs og tekur nefndin fljótlega til starfa. 

Þau sem sóttu um starfið eru: 

  • Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor og deildarforseti Stjórnmálafræðideildar.
  • Lars Gunnar Lundsten, fv. ráðgjafi á rannsóknasviði Yrkeshögskolan Arcada, Finnlandi.
  • Magnús Þór Torfason, prófessor og deildarforseti Viðskiptafræðideildar.

Nýr forseti Félagsvísindasviðs tekur til starfa 1. júlí nk., en þá lætur Stefán Hrafn Jónsson, núverandi forseti sviðsins, af störfum.
 

Oddi og Gimli