Stafrænar ferilmöppur: Þróun nýrra leiða við námsmat á háskólastigi
![Stafrænar ferilmöppur: Þróun nýrra leiða við námsmat á háskólastigi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/kri_visindavaka_221001_089.jpg?itok=ONb-_u4x)
Hvenær
16. apríl 2024 15:30 til 16:30
Hvar
Stakkahlíð / Háteigsvegur
K-208
Nánar
Aðgangur ókeypis
Í þessari málstofu á vegum RANNUM – Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun - mun Dr. Debra Hoven prófessor við Athabasca háskólann í Kanada kynna þróun og notkun stafrænna ferilmappa í námi meistara- og doktorsnema.
Hún segir frá niðurstöðum rannsókna sinna á þessu sviði og býður upp á umræðu um gagnsemi stafrænna ferilmappa í háskólanámi.
Einnig er hægt að taka þátt í málstofunni á Zoom