Færni- og hermikennsla í heilbrigðisvísindum stórefld með víðtæku samstarfi
Fimmtudaginn 15. júní var undirritaður samningur um uppbyggingu færni- og hermikennslu í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Landspítalann og Sjúkrahúsið á Akureyri. Markmið samningsins er að efla menntun í heilbrigðistengdum greinum, stuðla að fjölgun heilbrigðisstarfsfólks og auka samstarf íslenskra háskóla og kennslusjúkrahúsa. Þannig er hægt að bæta samkeppnishæfni þeirra í heilbrigðisvísindum auk þess að efla gæði náms, rannsókna og stoðþjónustu. Það er frábært að þrír háskólar, HÍ, HA og HR í samvinnu við Landspítalann og Sjúkrahúsið á Akureyri, sameinist um að setja á fót öflugt færni- og hermisetur sem er nútímaleg lausn notuð víða um heim til að fjölga nemendum í fjölbreyttum greinum heilbrigðisvísindanna.
Hermikennsla sem þessi felst í að herma með tæknibúnaði eða leiknum sjúklingum eftir raunverulegum aðstæðum, aðgerðum eða inngripum í öruggu umhverfi með leiðbeinanda.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, ásamt fulltrúum Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Akureyri, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri, undirrituðu samning um styrk til uppbyggingar færni- og hermikennslu í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Landspítalann og Sjúkrahúsið á Akureyri.
„Við verðum að fjölga nemendum í heilbrigðisvísindum á Íslandi. Ein helsta hindrunin í okkar kerfi hefur verið klíníska námið, starfsnámið á sjúkrahúsunum, vegna þess að sjúkrahúsin hafa hvorki aðstöðu né mannskap til að taka á móti fleiri nemendum í heilbrigðisvísindum,” segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. „Það er því frábært að þrír háskólar sameinist, í samvinnu við Landspítalann og Sjúkrahúsið á Akureyri, um að setja færni- og hermisetur á laggirnar sem er nútímaleg lausn notuð víða um heim til að fjölga nemendum í fjölbreyttum greinum heilbrigðisvísindanna.“
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, tekur í sama streng. „Uppbygging hermisetra og færnibúða er nauðsynlegur hluti innviðauppbyggingar í bæði heilbrigðis- og menntakerfinu. Í takt við forgangsaðgerðir ráðuneytanna um mönnun og menntun heilbrigðisstarfsfólks mun þetta gjörbylta aðstöðu til kennslu, náms og þjálfunar á öllum stigum. Þessi samningur er mikið gleðiefni og sýnir hversu mikilvæg samvinna er, milli ráðuneyta og stofnana, til að ná fram áþreifanlegum umbótum í heilbrigðiskerfinu.“
Unnur Þorsteinsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, mætti í Síðdegisútvarpið á Rás 2 og ræddi um samninginn um nýtt hermi- og færnisetur og má hlusta á upptöku hér á vef RÚV. Viðtalið byrjar á 9:48.
Bætt samkeppnishæfni náms í heilbrigðisvísindum
Markmið samningsins er að efla menntun í heilbrigðistengdum greinum, stuðla að fjölgun heilbrigðisstarfsfólks og auka samstarf íslenskra háskóla og kennslusjúkrahúsa. Þannig er hægt að bæta samkeppnishæfni þeirra í heilbrigðisvísindum auk þess að efla gæði náms, rannsókna og stoðþjónustu. Markmið samstarfsverkefnisins er í meginatriðum fimmþætt:
- Þróun og samþætting þekkingar á sviði færni- og hermikennslu þeirra háskóla og sjúkrahúsa sem sjá um kennslu í heilbrigðisvísindum.
- Stuðlað að árangursríkri miðlun þekkingar með nýstárlegum og skilvirkum kennsluaðferðum.
- Fjölgun hermileiðbeinenda innan háskólanna og samstarfsstofnana og efling símenntunar reyndra kennara í hermikennslu.
- Undirbúningur til stóreflingar aðstöðu og tækjabúnaðar til færni- og hermikennslu í Reykjavík og á Akureyri. Mikilvægt er að á báðum stöðum sé til staðar grunnbúnaður fyrir færni- og hermikennslu helstu heilbrigðisstétta, en þar að auki sérhæfðari búnaður í Reykjavík fyrir sértækari kennslu og þjálfun.
- Aukning þverfaglegrar samvinnu á sviði heilbrigðisvísinda og stuðningur við kennslu- og rannsóknasamstarf milli þeirra stofnana sem að verkefninu koma.
15. júní var undirritaður samningur um uppbyggingu færni- og hermikennslu í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Landspítalann og Sjúkrahúsið á Akureyri, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðurneyti og heilbrigðisráðuneyti. Ljósmynd LSH
Verkefnið er eitt af samstarfsverkefnum háskóla sem styrkt er af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og fellur undir forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og heilbrigðisráðherra lögðu sameiginlega fram til að mæta aukinni mannaflaþörf í heilbrigðiskerfinu og efla heilbrigðismenntun. Af þeim 25 verkefnum sem styrkt eru í Samstarfi háskóla hlýtur uppbygging færni- og hermisetra stærstu einstöku úthlutunina, alls 165 m.kr. Heilbrigðisráðuneytið veitir sömu upphæð til verkefnisins á samningstímanum og er heildarupphæð samningsins því 330 m.kr. Fréttin var upphaflega birt á vef Stjórnarráðs Íslands 15. júní 2023.