Núvituð samkennd í eigin garð Nánari upplýsingar síðar Sjálfstyrkingarnámskeið Sálfræðiþjónusta NHÍ býður námsmönnum skólans upp á fimm vikna sjálfstyrkingarnámskeið sem byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM). Á námskeiðinu verða kenndar aðferðir til að rjúfa vítahring lágs sjálfsmats með því að vinna með óhjálplegar hugsanir (sjálfsgagnrýni) og óhjálplega hegðun (frestun, forðun og fullkomnunaráráttu). Skoðaðar verða gagnlegar leiðir til að takast á við lágt sjálfsmat og bæta þannig líðan okkar. Leiðbeinendur eru Camilla Ann Stacey og Hrafnkatla Agnarsdóttir, sálfræðingar. Námskeiðsgjald er 6000 kr. Aðeins 15 pláss eru í boði og því er nauðsynlegt að skrá sig. Skráning fer einungis fram á Þjónustuborðinu Háskólatorgi. Vinsamlegast athugið að skráning á námskeið er bindandi. Námskeiðið er haldið einu sinni í viku frá kl. 13:00 - 15:00 eftirfarandi fimmtudaga 24. september., 1. október, 15. október, 22. október og 29. október. Prófkvíðanámskeið Nemendaráðgjöf HÍ býður upp á fjögurra vikna prófkvíðanámskeið á haustmisseri 2026. Kennt verður á þriðjudögum frá kl. 14:00 - 16:00 frá 6. til 27. október. Markmið námskeiðisins er að nemendur fái fræðslu um hvaða þættir hafi áhrif á tilurð og mótun prófkvíða og læri aðferðir til að takast á við prófkvíða á uppbyggilegan hátt. Fyrirlesarar: Hrafnhildur V. Kjartansdóttir og Kristín Hulda Gísladóttir Námskeiðsgjaldið er 5000 kr. Staðsetning: HT-301 Skráning fer einungis fram á Þjónustuborðinu, Háskólatorgi. Stuðningshópur vegna átaka á Mið-Austurlöndum Stuðningshópur ætlaður þeim sem finna fyrir sálrænum áhrifum vegna stríðsátakana í Mið-Austurlöndum. Er hópurinn ætlaður bæði nemendum og starfsfólki HÍ. Þessi viðburður verður haldinn á ensku og eru undir handleiðslu sálfræðinga nemendaráðgjafar HÍ. Leiðbeinendur eru Camilla Ann Stacey og Kristín Hulda Gísladóttir, sálfræðingar. Viðburðurinn verður haldinn 17. september, 8. október og 29. október í HT301. Opnað verður fyrir skráningu tveimur vikum fyrir hvern viðburð. Fyrirlestrar Í kjólin fyrir jólin - Heilbrigt samband við mat Fimmtudaginn 12. nóvember, kl. 13:00- 15:00 - Opnað verður fyrir skráningu 28. október. Fræðsla sem fer yfir hvað einkennir óheilbrigt samband við mat, hvað ber að varast í þeim efnum og hvernig hægt sé að efla heilbrigði í mataræði og líkamsmynd. Fyrirlesari: Hrafnkatla Agnarsdóttir, sálfræðingur Fyrirlesturinn fer frá á Íslensku. Jólastreyta Mánudaginn 16. nóvember, kl. 14:00 - 15:00 - Skráning opnar 2. nóvember Fræðsla um kvíða og streitu tengt jólunum. Fjallað verður um ástæður þess að kvíði og streita eykst hjá sumum í aðdraganda jólanna, helstu birtingarmyndir kvíða og streitu og hjálpleg bjargráð. Fyrirlesari: Camilla Ann Stacey, sálfræðingur Geðveikir dagar Nánari upplýsingar síðar facebooklinkedintwitter