Heimilt að víkja frá grímuskyldu eftir að sest er í skólastofum
Í dag voru birtar leiðbeiningar á vef Stjórnarráðsins vegna núgildandi reglugerðar heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum. Markmið sóttvarnaráðstafana í skólum eru að stuðla að öryggi og velferð nemenda, kennara og annars starfsfólks og tryggja, eftir því sem kostur er, kraftmikið og fjölbreytt skólastarf. Leiðbeiningarnar fela m.a. eftirfarandi í sér fyrir Háskóla Íslands:
- Nemendur og starfsfólk eiga að bera grímu þar sem ekki er hægt að virða 1 metra nándarreglu.
- Heimilt er að víkja frá grímuskyldu eftir að nemendur eru sestir niður inni í skólastofu.
- Leyfilegur hámarksfjöldi starfsfólks og nemenda er 200 í rými.
- Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir nemendur eða starfsfólk.
- Um viðburði á vegum skóla eða nemendafélaga þeirra gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og 200 manna fjöldatakmörkun fullorðinna.
Að öðru leyti er vísað í orðsendingu Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskólans, frá því 11. ágúst þar sem áhersla er lögð á að skólahald verði með sem eðlilegustum hætti. Jafnframt hvatti rektor nemendur og starfsfólk til að vera ábyrg og meðvituð og huga sérstaklega að einstaklingsbundnum sóttvörnum.
Núgildandi reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum gildir til og með 27. ágúst nk.