Hermann Pálsson, aldarminning
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Ráðstefna haldin af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.
Auðarsalur, Veröld, Hús Vigdísar v/ Suðurgötu (smelltu hér til að fylgjast með streymi).
Miðvikudag 26. maí frá 16:00 til 18:00
Hermann Pálsson, prófessor við háskólann í Edinborg, var einn af áhrifa- og afkastamestu fræðimönnum á sviði íslenskra fræða á seinni hluta 20. aldar. Bækur hans skipta tugum og greinar hundruðum. Hann var einnig mikilvirkur þýðandi íslenskra fornbókmennta á enska tungu. Í gegnum þær kynntust fleiri kynslóðir lesenda um heim allan fornsögunum.
Í tilefni af því að öld er liðin frá fæðingu Hermanns leggja Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum saman krafta sína og efna til ráðstefnu í minningu hans. Þar munu vinir Hermanns og kollegar fjalla um verk hans en líka um manninn.
Ráðstefnan er öllum opin og þátttaka er ókeypis.
(Smellið hér til að hlusta á viðtal við Torfa H. Tulinius um Hermann og ráðstefnuna).
Dagskrá:
- Eva María Jónsdóttir: Ráðstefnan sett.
- Vésteinn Ólason: Útlagar.
- Ásdís Egilsdóttir: Sagan okkar Hermanns.
- Magnús Hannesson: Af Sauðanesætt.
- Guðrún Nordal: "Var fagurt um að litast".
- Ármann Jakobsson: Um völvur í forntextum.
- Aðalheiður Guðmundsdóttir: Bardaginn eilífi á Bretlandseyjum.
- Örnólfur Thorsson: "Margt er öðru líkt" - Hermann Pálsson og Grettla.
- Annette Lassen: Morð, hauskúpur og mannát – eða lærð vinnubrögð edduhöfunda.
- Guðmundur Andri Thorsson: “Við brottför þína brugðu fjöllin lit”
- Torfi H. Tulinius: Sagnaskemmtun, ritmenning og veisluhöld.
- Gísli Sigurðsson: Summer of Love og upphaf fornsagnaþinga.
Hermann Pálsson, prófessor við háskólann í Edinborg