Háskóladagurinn 2021 fór alfarið fram á netinu vegna samkomutakmarkana en í boði voru fjarfundir með nemendum og kennurum í öllum námsleiðum í grunnnámi í Háskóla Íslands. Jafnframt stóð skólinn fyrir beinni útsendingu úr Hátíðasal undir yfirskriftinni „Vísindi á mannamáli“ þar sem fræðafólk innan skólans ræddi málefni líðandi stundar, vísindi og fleira. MYNDIR/Kristinn Ingvarsson
Til þess að fá að nota myndirnar verður að senda póst til Höllu Hallsdóttur, hallah@hi.is. Einnig á að skila öllum myndum til hennar sem teknar eru á vegum Háskólans.