Vísindi á mannamáli í beinu streymi á Stafrænum Háskóladegi
Á Stafræna Háskóladeginum situr vísinda- og fræðafólk Háskóla Íslands fyrir svörum í beinu streymi úr Hátíðasal skólans. Um er að ræða spjallþátt þar sem ætlunin er að ræða efni í deiglunni, áskoranir samtímans og rannsóknir í víðum skilningi auk þess sem tækifæri gefst til að varpa ljósi á hina hliðina á vísindamönnunum sem ekki blasir alltaf við.
Viðburðurinn er laugardaginn 27. febrúar milli kl. 13 og 15.30 og verður hægt að nálgast streymið hér.
Viðmælendur verða frá öllum fimm fræðasviðum auk þess sem Jón Atli Benediktsson, rektor Háskólans mun sitja fyrir svörum.
Viðmælendur verða auk Jóns Atla, Isabel Alejandra Dias, Silja Bára Ómarsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, Eyvindur G. Gunnarsson, Helgi Gunnlaugsson, Urður Njarðvík, Thor Aspelund, Andri Steinþór Björnsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Ingileif Jónsdóttir, Ármann Jakobsson, Rósa Signý Gísladóttir, Guðmundur Hálfdanarson, Guðrún Nordal, Kristín Jónsdóttir, Ólafur Páll Jónsson, Berglind Rós Magnúsdóttir, Guðfinna Aðalgeirsdóttir, Magnús Tumi Guðmundsson, Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, Gunnar Þór Hallgrímsson og Halldór Pálmar Halldórsson.
-----
Þessi beina útsending úr Hátíðasal verður samhliða því sem allar námsleiðir í grunnnámi verða kynntar á Stafræna Háskóladeginum. Hann er samstarfsverkefni allra háskóla á Íslandi sem verður þann 27. febrúar milli kl. 12 og 16. Sjá nánar á haskoladagurinn.is
Spyrlar verða Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs skólans, og Björn Gíslason kynningar- og vefritsjóri.
Á milli hverrar viðtalslotu verða sýnd spennandi innslög sem varpa ljósi á mikilvægi upplýsingatækninnar á okkar tímum.