Nýnemum við Heilbrigðisvísindasvið er boðið á kynningarfundi hjá sinni deild eða námsbraut. Þar eru veittar mikilvægar upplýsingar um námið og fyrstu skrefin í Háskólanum. Þá vekjum við einnig sérstaka athygli á nýnemadögum Háskóla Íslands, þar sem fá má ýmsar gagnlegar upplýsingar og fróðleik. Kynningarfundir fyrir nýnema á haustönn fara fram hjá deildum og/eða námsbrautum. Athugið að deildarskrifstofur geta átt eftir að uppfæra eldri dags- og tímasetningar í sumum tilfellum: Geislafræði og lífeindafræði Kynningarfundur fyrir nýnema í BS-námi í geislafræði haustið 2026 fer fram þriðjudaginn 18. ágúst kl. 14:10 í stofu S-210 í Stapa. Nemendur eru hvattir til að mæta og fá frekari upplýsingar um umgjörð og efni námsins ásamt kynningu frá FLOG (Félag lífeinda- og geislafræðinema). Kynningarfundur fyrir nýnema í BS-námi í lífeindafræði haustið 2026 fer fram fimmtudagin 20. ágúst kl. 11:40 í stofu HT-105 á Háskólatorgi. Nemendur eru hvattir til að mæta og fá frekari upplýsingar um umgjörð og efni námsins ásamt kynningu frá FLOG (Félag lífeinda- og geislafræðinema). Upphaf kennslu haustið 2026 í lífeindafræði og geislafræði er mánudaginn 17. ágúst. Heilbrigðisgagnafræði Nýnemakynning verður haldin á netinu kl. 16 fimmtudaginn 27. ágúst 2026. Nýnemar fá tölvupóst með hlekk á fundinn. Kennsla hefst þriðudaginn 1. september. Hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Kynningarfundur fyrir nýnema í hjúkrunarfræði haustið 2025 fer fram miðvikudaginn 20. ágúst kl. 10:00 í Eddu. Nemendur eru hvattir til að mæta og fá frekari upplýsingar um umgjörð og efni námsins. Kennsla á haustönn 2025 hefst 18. ágúst. Lyfjafræði Kynningarfundur fyrir BS-nemendur í lyfjafræði haustið 2026 verður mánudaginn 17. ágúst kl. 13:30 í Haga stofu 104. Fyrsta árið byrjar fimmudaginn 13. ágúst á öryggisnámskeiði. Upphaf kennslu haustið 2026 er 17. ágúst. Lýðheilsuvísindi Allir nýnemar í MPH/MS námi við MLV skulu skrá sig í skyldunámskeiðið LÝÐ108F Málstofa nýnema í lýðheilsuvísindum, faralds- og líftölfræði á fyrsta haustmisseri náms. Þar er farið yfir ýmsar hagnýtar upplýsingar, fræðileg vinnubrögð og skipulag náms, heimildaleit og vísindalæsi auk undirstöðuþjálfunar í tölfræðiforritinu R. Læknisfræði Kynningarfundur fyrir nýnema í læknisfræði haustið 2026 fer fram mánudaginn 10. ágúst kl. 8:20 og er partur af námskeiðinu LÆK123G. Upphaf kennslu haustið 2026 er 10.-17. ágúst. Upphaf kennslu á vormisseri 2027 er 4-11. janúar. Sjá frekari upplýsingar um kennslu- og prófatímabil í læknisfræði í Kennsluskrá 2026-27. Matvæla- og næringarfræði Kynningarfundur fyrir nýnema í BS-námi í matvælafræði og næringarfræði haustið 2026 fer fram mánudaginn 17. ágúst kl. 13 í Árnagarði stofu 301. Nemendur eru hvattir til að mæta og fá frekari upplýsingar um umgjörð og efni námsins. Fyrsta árið byrjar fimmudaginn 13. ágúst á öryggisnámskeiði. Önnur kennsla hefst mánudaginn 17. ágúst. Sálfræði Kynningarfundur fyrir nýnema í sálfræði haustið 2026 verður haldinn föstudaginn 21. ágúst kl. 14:00 í stofu HT-104 á Háskólatorgi. Þar verður farið yfir ýmsar gagnlegar upplýsingar. Anima, félag sálfræðinema, mun kynna starfsemi sína og Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands sömuleiðis Sjúkraþjálfunarfræði Kynningarfundur fyrir nýnema í BS-námi í sjúkraþjálfunarfræði haustið 2026 fer fram mánudaginn 17. ágúst kl. 12:40 í Stapa stofu 114. Kynningafundur fyrir MS-nám í sjúkraþjálfun fer fram mánudaginn 17. ágúst kl. 14:00 í stofu 114 í Stapa. Talmeinafræði Engir nýnemar í talmeinafræði haustið 2025. Tannlæknisfræði og tannsmíði Kynningarfundur fyrir nýnema í tannlæknisfræði og tannsmíði haustið 2026 fer fram mánudaginn 17. ágúst kl. 16:00 í stofu 201 á Tannlæknadeild. Farið verður yfir helstu atriði námsins. Kennsla haustið 2026 hefst 17. ágúst. facebooklinkedintwitter