Samstarf við Háskólann í Gdansk
![""](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___fr_ttum/public/bgisla/88111194_2402807243383478_3865355186398560256_n.jpg?itok=owpNNTl3)
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirritaði í vikunni samstarfssamning fyrir hönd Háskólans við Háskólann í Gdansk í Póllandi. Undirritunin fór fram á þilfari fullkomins hafrannsóknaskips pólska háskólans að viðstaddri Lilju Dögg Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra eftir ferð með skipinu.
Rektor og ráðherra voru í fylgdarliði íslensku forsetahjónanna í opinberri heimsókn þeirra til Póllands þar sem borgirnar Varsjá og Gdansk voru heimsóttar.
Háskólinn í Varsjá var meðal viðkomustaða hópsins sem átti fund með Marcin Palys, rektor Varsjárháskóla, um samstarf Íslands og Póllands í menntamálum og pólskukennslu við Háskóla Íslands en ætlunin er að efla hana í samstarfi við Varsjárháskóla. Í heimsókninni í Varsjárháskóla flutti Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, enn fremur vel sótt erindi undir yfirskriftinni „Defending Asgard. Independence and Human Rights. The Use of History in Human Rights“.
Frá fundi mennta- og menningarmálaráðherra og rektors með fulltrúum Háskólans í Gdansk.
![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/bgisla/87359341_2403393983324804_6564020843716804608_n.jpg?itok=tSVe7S16)
Þá áttu Jón Atli, Lilja, Aneta Oniszczuk-Jastrząbek, aðstoðarrektor upplýsingatækniþróunar og alþjóðatengsla við Háskólann í Gdansk, og Piotr Stepnowski, aðstoðarrektor vísinda, ásamt fleirum góðan fund á meðan á heimsókninni stóð. Að fundinum loknum undirrituðu Jón Atli og samstarfssamning milli skólanna sem fyrr segir. Samningurinn nær til nemenda- og kennaraskipta auk samstarfs um kennslu- og rannsóknasamstarf.
Alls á Háskóli Íslands í samstarfi við 12 háskóla í Póllandi á fjölbreyttum fræðasviðum en samstarfið nær m.a. til nemenda- og kennaraskipta og rannsókna.