English version here Vilt þú átta þig betur á eigin styrkleikum, efla tengslanetið og um leið öðlast aukna færni í að nýta þekkingu þína og hugmyndir í þágu samfélagsins? Viltu vinna með fjölbreyttum hópi nemenda að nýjum lausnum við áskorunum samtímans, eins og loftslagsbreytingum og aukinni velsæld allra?Háskóli Íslands býður upp á námskeiðið Kveikju (e. Spark Social) fyrir nemendur af öllum fræðasviðum og frá háskólum um alla Evrópu. Námskeiðið er ætlað meistaranemum og nemendum á síðasta ári í grunnnámi. Í námskeiðinu öðlast nemendur aukinn skilning á áskorunum samtímans og vinna að lausnum á þeim. Dagsetningar námskeiðs Dagana 13.-17. maí 2024 fer fram fimm daga staðarlota. Nemendur þurfa að gera ráð fyrir viðveru frá kl. 9-16 þessa daga. Til að undirbúa staðlotuna taka nemendur þátt í fimm fjarlotum og geta valið um að mæta í fjarlotur annaðhvort á fimmtudögum eða á föstudögum á tímabilinu febrúar til maí 2024. Nemendur velja annaðhvort: Fimmtudagslotur kl. 13:00-15:00: 8. feb., 29. feb, 21. mars, 11. apríl, 2. maí Föstudagslotur kl. 9:00-11:00 9. feb., 1. mars, 22. mars, 12. apríl, 3. maí Skráning í námskeiðið Nemendur í HÍ sem uppfylla forkröfur námskeiðsins (eru á þriðja ári eða í meistaranámi) geta skráð sig í námskeiðið á endurskoðunartímabili skráninga fyrir vormisseri, eða til og með 21. janúar. Námskeiðið er 6 ECTS einingar og gildir sem valnámskeið með samþykki deildar nemandans. Hægt er að skrá sig á tvo máta, eftir því hvor leiðin hentar betur: Skráning í gegnum vefform Hægt er að óska eftir skráningu með einföldu skráningarformi hér. Skráning beint í Uglu Hægt er að leita að námsskeiðinu í námskeiðaskráningu í Uglu og skrá sig þar (til að finna námskeiðið getur verið gott að hafa til hliðsjónar námskeiðsupplýsingar í kennsluskrá. (Ekki þarf að skrá sig á báðum stöðum) Hvað er Kveikja? Kveikja er blandað námskeið (rafrænar og staðbundnar lotur) og viðburður þar sem nemendum af öllum fimm fræðasviðum og úr öllum Aurora-háskólum gefst kostur á að koma saman. Námskeiðið hvílir á þremur grunnstoðum: Nýsköpun – Nemendur beita nýsköpunarhugsun til að takast á við áskoranir í náinni samvinnu við samnemendur sína af öðrum fræðasviðum Starfsþróun – Í námskeiðinu búa nemendur sig undir þau verkefni sem taka við hjá þeim eftir námslok, kynnast fólki úr atvinnulífinu og fá þjálfun í tengslamyndun Heimsmarkmiðin – Áskoranirnar sem nemendur takast á við tengjast beint heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna en markmiðin verða stöðugt mikilvægari þáttur bæði í starfsemi einkaaðila og hins opinbera Fyrirkomulag: Vinnan fer fram þvert á námsleiðir og í samstarfi við öfluga leiðbeinendur úr háskólanum og atvinnulífi. Námskeiðið er haldið í samstarfi við aðra háskóla innan Aurora-samstarfsins í Evrópu og með styrk frá Erasmus áætluninni um BIP-námskeið (e. Blended Intensive Programs). Í námskeiðinu fá nemendur skarpari sýn á eigin styrkleika og efla nýsköpunar- og frumkvöðlahugsun undir leiðsögn reynslumikilla kennara. Forkröfur, undirbúningur, og einingafjöldi: Að vera á síðasta ári í grunnnámi eða í meistaranámi við Háskóla Íslands eða aðra háskóla Aurora-samstarfsins Kynna sér eitt af undirmarkmiðum heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna Nemendur sem taka þátt í viðburðunum og standa skil á nauðsynlegri undirbúningsvinnu fá námskeiðið metið til eininga (6 ECTS-einingar) Afurð: Kynning á niðurstöðum hópavinnunnar Ertu með fyrirspurn um námskeiðið? Hagnýtar upplýsingar Nemendur sem taka þátt í viðburðunum og standa skil á nauðsynlegri undirbúningsvinnu fá námskeiðið metið til eininga (6 ECTS-eining). Við val á nemendum inn í námskeiðið verður tekið mið af því að hafa nemendahópinn sem fjölbreyttastan. Kveikja gefur nemendum tækifæri til að Taka þátt í námskeiði sem er allt öðruvísi en önnur námskeið Læra um tengslamyndun og efla tengslanetið Tengja saman nýsköpun og heimsmarkmiðin Vinna með nemendum af öðrum sviðum og úr öðrum Aurora-háskólum í Evrópu Heyra innlegg frá þjóðþekktum gestum Styrkja atvinnuhæfni sína Hvað segja þátttakendur? facebooklinkedintwitter