Meistaravörn í lyfjafræði - Unnur Karen Guðbjörnsdóttir
Askja
stofa 132
Fimmtudaginn 16. maí ver Unnur Karen Guðbjörnsdóttir MS verkefni sitt í lyfjafræði við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Verkefnið ber heitið Icelandic community pharmacists’ expectations of future role extensions and training requirements - a needs assessment
Prófdómarar eru Elín Í Jacobsen, klínískur lyfjafræðingur og dr. Lárus Steinþór Guðmundsson, dósent við Lyfjafræðideild.
Leiðbeinendur Unnar Karenar voru Anita Weidmann, School of Pharmacy and Life Sciences, Robert Gordon University í Aberdeen, Anna Ingibjörg Gunnarsdóttir og Pétur S. Gunnarsson, bæði klínískir lyfjafræðingar og lektorar við Lyfjafræðideild. Umsjónarkennari verkefnisins var Freyja Jónsdóttir, klínískur lyfjafræðingur og aðjúnkt við Lyfjafræðideild.
Ágrip af rannsókn
Lengi vel hafa hlutverk lyfjafræðinga í apótekum að mestu leyti verið afgreiðsla lyfseðla og stuttar ráðgjafir til viðskiptavina. Á seinustu árum hafa hlutverk lyfjafræðinga í apótekum í ýmsum löndum hins vegar verið að aukast í átt að sjúklingamiðaðri þjónustu, en slík þróun hefur ekki átt sér stað á Íslandi svo vitað sé um. Markmið rannsóknarinnar var að kanna væntingar og skoðanir lyfjafræðinga í apótekum á Íslandi á hlutverkum þeirra í starfi og mögulegum breytingum á þeim í framtíðinni ásamt meðfylgjandi starfsþjálfun. Niðurstöður sýndu að 90.2% allra þátttakenda (n=55) sáu þörf fyrir útvíkkuðum starfshlutverkum lyfjafræðinga í apótekum og allir þátttakendur nema einn (n=60, 98.4%) voru tilbúnir til að leggja á sig aukalega þjálfun til að gera útvíkkun starfshlutverka að möguleika á Íslandi.
Um nemandann
Unnur Karen Guðbjörnsdóttir er fædd þann 4. febrúar 1993 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík vorið 2012 og byrjaði í lyfjafræði við Háskóla Íslands haustið 2013. Unnur Karen hefur unnið í Lyfju síðan um sumarið 2014 og hefur einnig unnið tvö sumur í blöndunareiningu sjúkrahúsapóteksins á Landspítala. Foreldrar Unnar eru Guðbjörn Sölvi Ingason og Unnur Baldursdóttir og maki minn er Hrólfur Vilhjálmsson. Eftir útskrift mun Unnur Karen hefja störf sem lyfjafræðingur hjá Lyfju og vonast til þess að það starf geti orðið framtíðarstarf enda hafa störf lyfjafræðinga í apótekum lengi heillað hana.
Fimmtudaginn 16. maí ver Unnur Karen Guðbjörnsdóttir MS verkefni sitt í lyfjafræði við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Verkefnið ber heitið Icelandic community pharmacists’ expectations of future role extensions and training requirements - a needs assessment