Doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild: Arngrímur Vídalín
![Doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild: Arngrímur Vídalín - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir/hatid_haskolatorg.jpg?itok=4EJNceTU)
Aðalbygging
Hátíðasalur
Fimmtudaginn 2. nóvember næstkomandi fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Arngrímur Vídalín doktorsritgerð sína í íslenskum bókmenntum sem nefnist Skuggsjá sjálfsins: Skrímsl, jöðrun og afmennskun í lærdómshefð íslenskra sagnaritara 1100-1550. Andmælendur eru Annette Lassen, rannsóknardósent við Árnasafn í Kaupmannahöfn, og Rudolf Simek, prófessor við Háskólann í Bonn.
Doktorsritgerðin er unnin undir leiðsögn Ármanns Jakobssonar, prófessors í íslenskum bókmenntum fyrri alda. Aðrir í doktorsnefnd eru Aðalheiður Guðmundsdóttir og Daniel Sävborg.
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Rannsóknin rekur uppruna hugmynda miðaldafólks um framandi þjóðir á jaðri heimsins, hvernig þeim var beitt í íslenskum alfræði- og sagnaritum til að skrímslisgera hópa sem þóttu óæskilegir. Rannsóknin er framlag til rannsókna á jaðarsetningu og afmennskun, en einnig til íslenskra sjálfsmyndarrannsókna og rannsókna á bókmenningu fyrri alda. Hún er hluti af rannsóknarverkefninu Encounters with the Paranormal sem stýrt hefur verið af Ármanni Jakobssyni.
Doktorsefnið
Arngrímur Vídalín lauk B.A.-prófi í íslensku árið 2010 og Cand. Mag. í norrænum málum og bókmenntum við Árósaháskóla árið 2012. Á námstímanum hlaut hann styrki frá Árnanefnd í Kaupmannahöfn og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands. Þá kenndi hann eitt misseri við Háskólann í Slesíu í Katowice, Póllandi, auk eins misseris við námsdvöl við Harvardháskóla í Bandaríkjunum. Hann vinnur nú að bók um Grettis sögu með styrkjum frá Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna og Hagþenki.
Arngrímur Vídalín.
![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4g5ra.jpg?itok=0-dpAco3)