Deildin á í margs konar samstarfi við ýmsa aðila, bæði innanlands og erlendis. Tengsl við atvinnulífið eru góð og vinna fjölmörg fyrirtæki og stofnanir með deildinni.
Nemendum deildarinnar gefst kostur á að taka hluta af námi við erlenda/n háskóla, þeir geta sótt um að fara í skiptinám í einhvern af samstarfsskólum Háskólans í eitt eða tvö misseri og jafnvel í eitt ár. Nánar um alþjóðlegt samstarf.
Í samstarfi við Verkfræði- og náttúruvísindasvið og Félagsvísindasvið er boðið upp á meistaranám í umhverfis- og auðlindafræðum.