Skip to main content

Inntökuskilyrði í sálfræðinám

Grunnnám

BS-nám í sálfræði

Inntökuskilyrði í BS-nám við Sálfræðideild er stúdentspróf eða sambærilegt próf. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis, Háskólabrú, og frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík, Háskólagrunni, telst sambærilegt stúdentsprófi. Æskilegur undirbúningur er 3. hæfniþrep í íslensku, ensku og stærðfræði

Framhaldsnám

MS-nám í hagnýtri sálfræði

Til þess að umsókn um meistaranám í hagnýtri sálfræði komi til efnislegrar meðferðar þarf umsækjandi að hafa lokið bakkalárprófi (BA/BS) í sálfræði, að jafnaði með fyrstu einkunn, eða sambærilegu prófi sem Sálfræðideild metur gilt. Fullnægjandi inntökuskilyrði veita ekki sjálfkrafa rétt til inngöngu í námið, heldur er ákvörðun um inntöku byggð á heildstæðu mati inntökunefndar á grundvelli þeirra gagna og viðmiða sem tilgreind eru í 3. og 4. mgr. 

Inntökunefnd Sálfræðideildar metur allar gildar umsóknir til að kanna hæfni umsækjenda til að stunda námið með fullnægjandi árangri. Sé fjöldi hæfra umsækjenda meiri en nemendafjöldi skv. 1. mgr. heimilar, skal inntökunefnd raða þeim í forgangsröð á grundvelli heildarmats á eftirfarandi þáttum. 

a) Námsárangur í grunnnámi, þar með talið einkunnir og innbyrðis árangursröðun (e. ranking) innan námskeiða. 
b) Viðtöl við umsækjendur, ef viðtöl eru tekin. 
c) Viðeigandi menntun önnur en grunnnám í sálfræði. 
d) Rannsóknareynsla og birtingar í ritrýndum tímaritum. 
e) Viðeigandi starfsreynsla. 
f) Gæði greinargerðar um náms- og starfsáform. 
g) Efni tveggja meðmælabréfa. 
h) Inntak sakavottorðs. 

Inntökunefnd Sálfræðideildar annast mat umsókna og gerir rökstudda tillögu til deildarforseta um inntöku nemenda.

Nánari upplýsingar um fylgigögn með umsókn