Skip to main content
15. júní 2023

Þrjátíu og fimm hljóta framgang í starfi

Þrjátíu og fimm hljóta framgang í starfi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þrjátíu og fimm akademískir starfsmenn Háskóla Íslands hafa fengið framgang í starfi að undangengnu ítarlegu faglegu mati á vegum dóm- og framgangsnefnda fræðasviða skólans. Starfsfólkið kemur af öllum fimm fræðasviðunum.

Akademískir starfsmenn geta árlega sótt um framgang í starfi og er hann jafnan veittur einu sinni á ári, þ.e. í lok skólaárs. Mat á umsóknum er í höndum sérstakra framgangsnefnda hvers fræðasviðs sem afgreiða hvert mál til framgangs- og fastráðningarnefndar. Í framhaldinu ákveður rektor á grundvelli fyrirliggjandi dómnefndarálita og afgreiðslu framgangs- og fastráðningarnefndar hverjum veita skuli framgang.

Að þessu sinni fá sautján framgang í starf prófessors, sextán í starf dósents, einn starfsmaður fær framgang í starf fræðimanns við Jarðvísindastofnun og einn fær framgang í starf fræðimanns við Raunvísindastofnun

Eftirtaldir starfsmenn fá framgang:

Félagsvísindasvið

Ásta Dís Ásta Dís Óladóttir í starf prófessors við Viðskiptafræðideild
Freydís Jóna Freydís Jóna Freysteinsdóttir í starf prófessors við Félagsráðgjafardeild
Helga Sól Helga Sól Ólafsdóttir í starf dósents við Félagsráðgjafardeild
Hersir Hersir Sigurgeirsson í starf prófessors við Viðskiptafræðideild
Hulda Þórisdóttir í starf prófessors við Stjórnmálafræðideild
James Gordon Rice í starf prófessors við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
Marías Halldór Gestsson í starf dósents við Hagfræðideild
Ragna Kemp Haraldsdóttir í starf dósents við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
Sigurður Sigurður Guðjónsson í starf dósents við Viðskiptafræðideild
Stefanía Óskarsdóttir í starf prófessors við Stjórnmálafræðideild
Valgerður Valgerður Anna Jóhannsdóttir í starf dósents við Stjórnmálafræðideild
Valgerður Valgerður Sólnes í starf prófessors við Lagadeild

Heilbrigðisvísindasvið

Björn Viðar Aðalbjörnsson í starf dósents við Matvæla- og næringarfræðideild
Brynja Örlygsdóttir í starf prófessors við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Emma Marie Swift í starf dósents við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir í starf prófessors við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Heiða María Sigurðardóttir í starf prófessors við Sálfræðideild
Hjalti Már Björnsson í starf dósents við Læknadeild
Kristín Huld Haraldsdóttir í starf dósents við Læknadeild
Margrét Helga Ögmundsdóttir í starf prófessors við Læknadeild
Marianne Klinke í starf prófessors við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Ólafur Ögmundarson í starf dósents við Matvæla- og næringarfræðideild
Þóra Jenný Gunnarsdóttir í starf prófessors við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Þóra Másdóttir í starf dósents við Læknadeild

Hugvísindasvið

Davíð Ólafsson í starf dósents við Íslensku- og menningardeild

Menntavísindasvið

Ásta Jóhannsdóttir í starf dósents við Deild menntunar og margbreytileika
Ástríður Stefánsdóttir í starf prófessors við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda
Jón Yngvi Jóhannsson í starf dósents við Deild faggreinakennslu

Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson í starf dósents við Raunvísindadeild
Edda Ruth Hlín Waage í starf dósents við Líf- og umhverfisvísindadeild
Elisa Piispa í starf fræðimanns við Jarðvísindastofnun
Enikö Bali í starf prófessors við Jarðvísindadeild
Jakob Sigurðsson í starf prófessors við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
Snædís Huld Björnsdóttir í starf prófessors við Líf- og umhverfisvísindadeild
Younes Abghoui í starf fræðimanns við Raunvísindastofnun

Háskóli Íslands færir öllu þessu fólki hamingjuóskir með framganginn.

Aðalbyggin