Skip to main content
30. júní 2023

Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum

Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur árið 2023. Um er að ræða styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og njóta nemendur við Háskóla Íslands forgangs. Heildarupphæð styrkja er allt að 2.000.000 krónur.
Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.

Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til og með 21. ágúst 2023.

Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar og heimasíðu sjóðsins á sjóðavef HÍ. 

Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna en stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, fulltrúi Ingibjargar R. Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústsdóttir, fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins.

Þetta er í fimmtánda sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. 

Styrkveiting fer fram á afmælishátíð Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar 29. september 2023.

Ingibjörg R. Magnúsdóttir, stofnandi sjóðsins, var námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún var einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.

Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands: www.sjodir.hi.is.

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti, t.d. með gjöfum í tilefni árgangsafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á bankareikning hjá Íslandsbanka, nr. 0596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnar, johannab@hi.is, sími 525-4987/525-4960 og Helga Brá Árnadóttir, verkefnastjóri Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is

""